Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Fjallað um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó í Speglinum

Í útvarpsþættinum Speglinum á Rás 2 í gær var talað við hjónin Pál Ásgeir Davíðsson og Bergljótu Arnalds en þau dvöldu í Austur-Kongó í hittifyrra þegar Páll Ásgeir var þar við störf á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þar heyrðu Páll og Bergljót m.a. átakanlegar sögur þolenda frá fyrstu hendi og kynntust því öfluga starfi sem UNICEF vinnur í þágu kynferðisbrotaþolenda. Viðtalið má nálgast hér.

V-dagurinn og UNICEF á Íslandi standa þessa dagana fyrir átaki til að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis í Austur-Kongó og afla styrkja meðal almennings. Styrkirnir renna til verkefna UNICEF í landinu í þágu þolenda ofbeldisins en UNICEF áætlar að frá árinu 1996 séu þolendurnir mörg hundruð þúsund og þar af yfir helmingurinn börn. Nánar má lesa um ástandi í Austur-Kongó hér.

Hægt að leggja átakinu lið hér eða með því að hringja í söfnunarsímanúmerin 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) og 908-5000 (5.000 krónur).