Vissir þú að...

UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.

Þú ert hér:  

Vodafone á Íslandi styrkir UNICEF

Fulltrúar frá Vodafone og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi (UNICEF) skrifuðu í dag undir samstarfssamning til tveggja ára. Vodafone mun styðja við starfsemi UNICEF með mánaðarlegu fjárframlagi upp á 50 þúsund krónur á samningstímanum auk þess sem fyrirtækið mun leggja UNICEF margvíslegt lið í fjáröflun í þágu bágstaddra barna víða um heim.

„Sem hjálparsamtök  leggjum við mikinn metnað í að halda öllum rekstrarkostnaði í skefjum, til að tryggja að sem mestir fjármunir renni beint til verkefna í þágu skjólstæðinga okkar. Þess vegna skiptir þetta samstarf okkur miklu máli,“ sagði Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, við þetta tilefni. Hann sagði það einnig vera sérstaklega ánægjulegt að UNICEF myndi njóta góðs af sérþekkingu starfsmanna Vodafone við fjáröflun í framtíðinni en á því sviði væru miklir möguleikar.

Vodafone hefur áður lagt sitt af mörkum til starfsemi UNICEF á Íslandi. Árið 2006 var fyrirtækið mikilvægur samstarfsaðili á degi rauða nefsins, söfnunarátaki  þar sem Íslendingar sýndu hug sinn í verki og studdu rausnarlegan við þróunarstarf UNICEF í þágu barna.