126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Fimm ár eru nú liðin frá því að jarðskjálfti við strendur Indónesíu olli risaflóðbylgjum í Indlandshafi. UNICEF hefur gefið út skýrslu með samantekt yfir árangurinn af uppbyggingarstarfi í löndunum átta sem urðu fyrir mannskaða og tjóni af völdum flóðbylgnanna.
Hægt er að skoða skýrsluna “Tsunami Report 5 Year Anniversary” á pdf-formati hér.
Flóðbylgjurnar í Indlandshafi þann 26. desember 2004 höfðu í för með sér gríðarlega eyðileggingu og mannskaða. Nær 230.000 manns létu lífið, meirihluti þeirra voru konur og börn. Samfélög lömuðust, lifnaðarhættir fólks voru lagðir í rúst og heimili, skólar og heilsugæslustöðvar voru gjöreyðilögð. Hin mikla eyðilegging og hin gríðalegu viðbrögð alþjóðasamfélagsins höfðu í för með sér tækifæri til þess að endurbyggja grunnþjónustu þannig að hún varð betri en fyrir flóðbylgjurnar miklu.
Alþjóðasamfélagið safnaði yfir 14 milljörðum bandaríkjadala til uppbyggingarstarfs og neyðaraðgerða í þeim löndum sem flóðbylgjurnar riðu yfir. UNICEF safnaði 694,7 milljónum bandaríkjadala til ráðstöfunar fyrir börn þessara landa, en þrír fjórðu þeirrar upphæðar var safnað af landsnefndum UNICEF.
Eins og ofangreind skýrsla sýnir hefur tækifærið til þess að endurreisa og bæta grunnþjónustu átt við önnur svið en einungis heilsugæslu, menntun og vatns- og hreinlætisþjónustu. Fjármagnið sem safnaðist til handa fórnarlömbum flóðbylgnanna hefur einnig verið nýtt til þess að bæta öryggi samfélaga og fjölskyldna á svæðum þar sem hætta er á náttúruhamförum eða vopnuðum átökum.
Skýrslan fjallar einnig um annan mikilvægan lærdóm sem dreginn var af neyðaraðgerðum eftir flóðbylgjurnar, en það er mikilvægi samráðs og samvinnu stjórnvalda, alþjóðlegra stofnanna og frjálsra félagasamtaka.
Neyðar- og uppbyggingaraðgerðir í flestum löndum sem áttu um sárt að binda eftir flóðbylgjurnar er nú lokið og stjórnvöld í þeim löndum hafa nú tekið við viðvarandi verkefnum. Vegna stærðar og umfangs uppbyggingaraðgerðanna á Indónesíu og Srí Lanka mun UNICEF halda áfram verkefnum tengdum uppbyggingu þar, þar til í lok 2010.