Yfirlýsing vegna 8. mars
YFYRLÝSING ANN M. VENEMAN VEGNA ALÞJÓÐLEGS BARÁTTUDAGS KVENNA, 8. MARS:
,,Í síðustu viku heimsótti ég miðstöð fyrir stúlkur í Gvatemala, sem studd var af UNICEF. Miðstöðin hýsir stúlkur, allt niður í 13 ára, sem hefur verið bjargað úr hóruhúsum. Sögur þeirra eru einu orði sagt ólýsandi, hræðilegar sögur nauðgana, vændis, misnotkunar og afskræmingar á sakleysi þeirra.
Með hjálp UNICEF og samstarfsaðila fá margar þessarra kvenna tækifæri til að búa sér betra líf með menntun og umhyggju. Mörgum hefur verið bjargað, en því miður eru enn fleiri fangar undirheima ofbeldis og kúgunar.
Sögur sem þessar eru ekki óalgengar í mörgum hornum heimsins og eru áminning þess að enn er mikið starf óunnið við að tryggja stúlkum og konum meiri vernd.
Milljónir stúlkna búa við fátækt, upplifa ójafnrétti og ofbeldi einfaldlega af því þær eru stúlkur. Það eru ekki bara stúlkurnar sem þjást, heldur viðheldur misréttið vítahring kúgunar.
Árangur hefur náðst í jafnréttisbaráttunni til að mynda með auknum aðgangi kvenna og stúlkna að heilsugæslu og menntun. Fjárfesting í menntun og heilsugæslu er nauðsynleg, en einnig þarf harðari lög go refsingu, sem og að sækja til saka þá sem misnota.
Menntun er einn stærsti þátturinn svo að tryggja megi stúlkum betra líf, fjölskyldum þeirra og samfélögum. Rannsóknir sýna að hvert ár sem stúlka dvelur í skóla hækkar innkoma hennar um meira en 15 prósent. Betur menntuð stúlka er líklegri til að fá betra starf og búa við betri heilsu, auk þess sem börn hennar njóta góðs af.
Það eru sterk tengsl milli menntunarstigs kvenna og betra efnahags landsins í heild. Menntun er auk þess valdefling fyrir konur og gefur þeim tækifæri til að láta rödd sína heyrast í þjóðfélaginu.
Um leið og við fögnum alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars, minnir dagurinn okkur á að alþjóðasamfélagið og ríkisstjórnir um heim allan verða að vinna harðar til að tryggja að hver einasta stúlka njóti réttar síns og fái að vaxa úr grasi þannig að hún nýti hæfileika sína til fulls.”