Vissir þú að...

þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.

Þú ert hér:  

Vernd barna á HM

Nú þegar Heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla nær hámarki eru verkefni UNICEF og samstarfsaðila um vernd barna í fullum gangi. Verkefni UNICEF í tengslum við mótið eru aðallega fimm; stofnun barnvænna staða, þjálfun félagsráðgjafa, Rautt spjald-átakið gegn ofbeldi á börnum, kynning á siðareglum í ferðamannaiðnaðinum og íþróttahátíðir.

UNICEF, ásamt ríkisstjórn landsins, félagasamtökum og samstarfsaðilum innan einkageirans, gerðu ítarlega áætlun sem miðaði að því að vernda bágstödd börn, sér í lagi þau sem eru umsjárlaus eða hafa orðið viðskila við foreldra eða umsjónaraðila á meðan á heimsmeistaramótinu í fótbolta stendur.

Þessi áætlun inniheldur fimm megin verkefni, þau eru:

Stofnun barnvænna staða
Komið hefur verið upp barnvænum stöðum í þeim fjórum borgum í Suður-Afríku sem FIFA kallar ,,Fan fest sites", þ.e. Soweto, Sandton, Nelspruit og Port Elisabeth. Staðirnir eiga að þjóna sem örugg svæði fyrir bágstödd eða týnd börn sem bíða þess að vera komið til foreldra sinna eða umsjáraðila. Börn sem þurfa sérstaka aðstoð munu verða send til viðeigandi félagsþjónustuaðila.

Þjálfun félagsráðgjafa
UNICEF og samstarfsaðilar hafa þjálfað þjónustuaðila innan félagslega kerfisins hjá hinu opinbera sem og félagasamtaka til að bæta og víkka út getu félagsráðgjafa í tengslum við HM. Þjálfunin miðaðist aðallega við að beita réttum viðbrögðum þegar börn eru í mikilli neyð og þörf er fyrir sérstaka umönnun og vernd.

Rauða spjalds-átakið
Þann 26. maí hófst átak sem kallast Rauða spjaldið. Um er að ræða veggspjöld, netmiðla, auglýsingar, undirskriftarlista og fleira í þeim dúr sem ætlað er að vekja fólk til meðvitundar um ofbeldi gegn börnum. Hugmyndin er að fólk geti gefið ofbeldi gegn börnum "rauða spjaldið". Átakinu mun aðallega vera beint að viðkvæmum samfélögum, börnum, foreldrum og ferðamannaiðnaðinum um alla Suður-Afríku.

Siðareglur ferðamannaiðnaðarins
UNICEF styður FTTSA (Fair Trade in Tourism South Africa) og alþjóðavinnumálastofnunina (ILO) í kynningu á siðareglum (the Code) fyrir ferðamannaiðnaðinn og ferðamenn í tengslum við HM í Suður-Afríku. Markmiðið er að hvetja þjónustuaðila innan ferðamannageirans til að fara eftir siðareglunum sem miðar að því að vernda börn gegn kynferðismisnotkun í kynlífsiðnaðinum. FTTSA dreifir kynningarefni til ferðamanna í gegnum hótel, ferðaskrifstofur og bílaleigufyrirtæki.

Íþróttahátíðir
UNICEF mun halda 21 íþróttahátíð í skólum í öllum níu héruðunum sem ætlað er að hvetja alla íbúa Suður-Afríku, sér í lagi börn, til að deila þeirri ánægju sem skapast hefur í tengslum við HM með því að taka þátt í íþróttum í eigin samfélagi. Íþróttahátíðirnar eru hluti af áætlun UNICEF um að innvinkla íþrótti og leiki í þróunaraðstoð. Íþróttahátíðarnar eru notaðar til að fræða börn um réttindi sín, lífsleikni og hvernig þau geta verndað sig gegn hugsanlegri misnotkun.