UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Hinn 23 ára Hafnfirðingur Stefán Helgi Waagfjörð heimsótti nýverið skrifstofu UNICEF á Íslandi með 75.000 króna gjöf til samtakanna. Peningunum safnaði Stefán með því að fá vini og vandamenn til að heita á sig og synda svo yfir Hafnafjarðarhöfn í júlí.
Að sögn Stefáns var þetta einfaldlega hugdetta sem hann fékk og var hann áður en varði farinn að safna áheitum sem hann kaus að láta renna til UNICEF, m.a. vegna vissu hans um að fénu væri þannig vel varið. Eftir það var ekki aftur snúið.
Með gjöfinni afhenti Stefán starfsfólki UNICEF gjafabréf þar sem segir meðal annars: „Með góðum óskum og þakklæti fyrir það þarfa starf sem unnið er á vegum UNICEF.“
UNICEF þakkar Stefáni einnig kærlega fyrir hönd þeirra barna sem njóta góðs af afrekinu.
Facebook-síða sem Stefán stofnaði í kringum uppátækið er hér.
Frétt um málið birtist á Vísi á sínum tíma og má lesa hana hér.