Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Börn og ungmenni til umræðu á HIV/alnæmis-ráðstefnunni í Vín

©UNICEF/NesbittAlþjóðlega ráðstefnan um HIV/alnæmi, AIDS 2010, lagði áherslu á mikilvægi þess að koma í veg fyrir smit frá móður til barns. Sérfræðingar UNICEF í HIV/alnæmi komu saman frá yfir 35 löndum á ráðstefnunni sem nú er að ljúka. Hinn neikvæði félagslegi stimpill sem fylgir sjúkdómnum víða er einnig mikið áhyggjuefni því hann kemur í veg fyrir að konur og ungmenni sæki sér þá þjónustu sem þau þurfi.

Um 400.000 börn fæðast með HIV árlega. Í niðurstöðum ráðstefnunnar var það sett í forgang á heimsvísu að koma í veg fyrir smit frá móður til barns.

UNICEF hefur með góðum árangri lagt áherslu á að koma í veg fyrir smit frá móður til barns í starfi sínu, sagði framkvæmdastjóri UNICEF Anthonly Lake á ráðstefnunni.

„Næsta skref hjá okkur ætti að mótast af því að ná til þeirra sem erfiðast er að ná til svo að þjónustan og eftirfylgnin sé að sönnu að ná til allra. Heilsa og velferð mæðra og barna veltur á þessu,“ sagði Jimmy Kolker, yfirmaður HIV/alnæmis hjá UNICEF.

Til að ná árangri á þessu sviði, þ.e. að verja hvítvoðunga gegn HIV-smiti, verður að leggja áherslu á erfið og viðkvæm mál, svo sem eiturlyfjaneyslu þungaðra HIV-smitaðra kvenna.

„Konur sem eru háðar eiturlyfjum eru í mikilli hættu á að verða fyrir mismunun vegna neyslu sinnar og HIV-smiti,“ sagði Nina Ferencic, aðalráðgjafi UNICEF í HIV og alnæmi í Austur-Evrópu og Mið-Asíu og einn af höfundum skýrslunnar Blame and Banishment: The underground HIV epidemic affectin gchildren in Eastern Europe and Central Asia. „Þessi félagslega einangrun getur leitt til þess að verðandi móðir leitar sér ekki mæðraverndar, og kemur rétt fyrir fæðingu, svo að tækifærið til að koma í veg fyrir smit er glatað. Fordómar sem fylgja sjúkdómnum styrkja því enn frekar þann vítahring sem eiturlyfjaneysla og HIV eru í.“

Vandinn er mikill, en viðbrögðin eru ekki nógu góð, bæði hvað varðar magn og gæði.

Vernd barna með HIV/alnæmi, forvarnir meðal ungmenna og þjónusta við HIV smituð ungmenni voru einnig til umræðu á ráðstefnunni í Vín.

Nánari upplýsingar um starf UNICEF á ráðstefnunni má sjá á http://aidsmap.org.