Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Aurora styrkir UNICEF í Síerra Leóne um 40 milljónir

Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur tilkynnt þá ákvörðun sína að veita 40 milljónum króna til verkefna UNICEF á sviði menntunar í Vestur-Afríkuríkinu Síerra Leóne. Meðal markmiða verkefnisins sem Aurora styrkir með svo rausnarlegum hætti er að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga.

Þetta er þriðja úthlutun sjóðsins til verkefnisins og liður í veigamesta verkefni sjóðsins frá stofnun.  Alls hefur verið ráðstafað 156 milljónum króna á fjórum árum til verkefnisins, að meðtöldum 36 milljónum króna sem stofnendur sjóðsins lögðu áður í byggingu 50 skóla í fátækustu héruðum landsins.

Í krafti þessara verkefna hafa á annað hundrað kennarar hlotið endurmenntun og um 60 skólabyggingar risið með tilheyrandi vatnsveitu- og frárennsliskerfum, húsbúnaði og kennslugögnum.

Á árinu sem leið var ákveðið að leggja aukna  áherslu á gæði námsins og að laga það sem best að þörfum barnanna og þá sérstaklega stúlkubarna.  Meira er því lagt í endurmenntun kennara og þjálfun í kennsluaðferðum þar sem barnið er sett í forgang, auk þess sem samfélagið er virkjað með því að stofna foreldrafélög við skólana og mæðraklúbba.

Styrkir til fjögurra verkefna

Aurora velgerðarsjóður er sjálfseignarstofnun með sjálfstæða stjórn. Sjóðurinn var stofnaður af hjónunum Ingibjörgu Kristjánsdóttur og Ólafi Ólafssyni í janúar 2007 og lögðu þau til stofnfé. Að þessu sinni veitir Aurora velgerðarsjóður 100 milljónum króna til fögura verkefna á Íslandi og í Síerra Leóne Nánari upplýsingar um verkefnin og Auroru velgerðarsjóð er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.aurorafund.is.

.