93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
Þú ert hér:
Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis. Allir hlauparar geta valið að tengja sig tilteknu góðgerðarfélagi, hvetja svo vini og vandamenn til að heita á sig og renna áheitin til félagsins.
Sem fyrr er UNICEF meðal þeirra góðgerðafélaga sem hlauparar geta tengt sig við þegar þeir skrá sig til keppni. Meðal þeirra sem kosið hafa að safna áheitum fyrir samtökin er Björn Margeirsson, en Björn hefur verið einn af albestu millivegalendahlaupurum landsins um árabil. Upp á síðkastið hefur hann svo verið að takast á við lengri vegalengdir með glæsilegum árangri og er skráður í heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer 21. ágúst.
Meðal hlaupa sem Björn hefur sigrað í ár má nefna Vormaraþon Félags maraþonhlaupara (42,2 km), Víðavangshlaup ÍR (5 km), Miðnæturhlaupið (10 km), Jökulsárhlaupið (32 km) og fjölmörg önnur.
Þeir sem vilja heita á Björn geta gert það hér. Lista yfir aðra hlaupara sem safna áheitum fyrir UNICEF má sjá hér.
Allir geta tekið þátt
UNICEF hvetur alla hlaupara í hópi styrktaraðila sinna til að skrá UNICEF sem sitt góðgerðarfélag en nánari upplýsingar um hvernig skal bera sig að er að finna hér. Hægt er að skrá sig í hlaupið hér.
Við erum afar þakklátt þeim fjölda hlaupara sem hefur kosið að hlaupa fyrir UNICEF undanfarin ár sem og þeim sem stutt hafa við bakið á samtökunum með því að heita á UNICEF-hlaupara.
Leiðbeiningar um hvað gera skuli ef ætlunin er að heita á ákveðinn hlaupara eða góðgerðafélag má finna á heimasíðu hlaupsins hér.