Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Átak í skráningu heimsforeldra

Ýtt hefur verið úr vör átaki í nýskráningu heimsforeldra. Á næstu misserum mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni samtakanna. Um er að ræða styrktarleið þar sem viðkomandi styrkir samtökin mánaðarlega með fastri upphæð og rennur styrkurinn til verkefna í þágu þeirra barna sem mesta þurfa á aðstoð að halda.

Heimsforeldrar eru mikilvægasta stuðningsnet UNICEF á Íslandi. Heimsforeldrar eru um 16.500 talsins og styrktu samtökin um hvorki meira né minna en 161 milljón árið 2009. Í krafti slíks stuðnings getur UNICEF unnið þrekvirki í þágu bágstaddra barna.

Við hvetjum fólk til að taka vel á móti starfsfólki okkar. Einnig hvetjum við auðvitað sem flesta til að ganga til liðs við heimsforeldra og taka þannig þátt í að bæta kjör barna sem eiga um sárt að binda um allan heim.

Einnig er hægt að skrá sig hér.