Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

Þúsaldarmarkmið um heilnæmt vatn innan seilingar

Í sameiginlegri skýrslu Alþjóðaheilbrigðis-stofnunarinnar (WHO) og UNICEF, sem kynnt var á alþjóðlegum degi vatnsins í síðustu viku, eru settar fram niðurstöður sem kalla á blendin viðbrögð.

Fram kemur í skýrslunni að um 87% mannkyns, eða 5,9 milljarðar manna, neyta öruggs drykkjarvatns. Þetta eru vissulega góð tíðindi og benda til þess að sjöunda þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sem lýtur að því að draga úr þeim fjölda sem ekki hefur aðgang að hreinu drykkjarvatni um helming á árabilinu 1990 til 2015, verði náð.

Hins vegar leiðir skýrslan einnig í ljós að um 2,6 milljarðar manna um allan heim, eða 39% mannkyns, hafa ekki aðgang að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu. Ef svo fer sem horfir mun alþjóðasamfélaginu skeika um allt að einn milljarð manna þegar kemur að þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um þann fjölda sem hefur aðgang að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu árið 2015.

„Öll erum við meðvituð um hve mikilvægu hlutverki vatn og hreinlæti gegna í heilbrigði og velferð fólks og hve stóran þátt þessir þættir eiga í þróun samfélaga. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir núna er hvernig við getum náð þúsaldarmarkmiðunum fyrr og, það sem skiptir enn meira máli, hvernig við getum náð að tryggja almennan aðgang fólks að þessum lykilþáttum,“ sagði talsmaður WHO, Dr. Maria Neira.

Lesa má nánar um kynningu skýrslunna á alþjóðlegri heimasíðu UNICEF hér. Skýrsluna í heild sinni er að finna hér.