Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

Dreifing hjálpargagna hefur tafist vegna eldgossins

Bólusetningarherferðum ekki tryggt nægt bóluefni og dreifingu hjálpargagna á Haítí stefnt í hættu.

Eins og flestum er kunnugt hefur eldgosið í Eyjafjallajökli valdið miklum truflunum á flugsamgöngum um Evrópu. Áhrifa þess gætir víða og hefur UNICEF m.a. ekki getað komið hjálpargögnum á vettvang víða um heim. Birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn vinnur náið með sérfræðingum sínum og vöruflutningafyrirtækjum til að finna aðrar leiðir fyrir hjálpargögn í þeim tilgangi að minnka áhrif flugbannsins á hjálparstarfið. Reiknað er með að kostnaður fyrir UNICEF verði meiri fyrir vikið.

Flugbannið hefur að mestu haft áhrif á bólusetningarherferðir UNICEF víða um heim þar sem bóluefnið þarf að flytja á milli landa. Bólusetningarherferðir gegn mænusótt, sem áætlað var að halda í nokkrum löndum á næstu vikum, munu því ekki ná til eins margra barna. Þar á meðal eru herferðir í Burkina Faso, Nígeríu, Chad, Pakistan og Nepal. Þess má geta að UNICEF bólusetur 100 milljón börn á ári og talið er að það bjargi lífi 2,6 milljónum barna.

Lokun flugvalla hefur einnig haft áhrif á dreifingu hjálpargagna frá Evrópu til Haítí. Stór hluti hjálpargagna hafði þó þegar verði sendur til Spánar og reiknað er með að það dugi hjálparstarfinu til næstu tveggja vikna.

UNICEF vinnur nú náið með vöruflutningafyrirtækjum við að finna aðrar leiðir fyrir hjálpargögn skyldi eldgosið halda áfram og hafa frekari áhrif á flugsamgöngur.