UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Það færist í vöxt að fólk kjósi að ánafna hluta eigna sinna til góðgerðamála eftir sinn dag. Það veitir enda mörgum gleði að vita til þess að erfðagjöf þeirra muni bæta stöðu annarra sem erfitt eiga uppdráttar.
UNICEF á Íslandi hefur nú tekið saman bækling til þess að skýra hversu mikilvægar erfðagjafir eru fyrir framtíðarstarf samtakanna, auk þess sem bæklingurinn inniheldur svör við spurningum sem upp kunna að koma um erfðagjafir til hjálparsamtaka. Með útkomu bæklingsins er tryggt að áhugasamir hafi greiðan aðgang að upplýsingum um þennan möguleika til að styrkja gott málefni.
Öll framlög, stór sem smá, koma að góðum notum í starfi UNICEF með börnum sem þurfa á stuðningi að halda. Erfðagjafir geta stuðlað að því að börn í fátækari löndum heimsins fái aðgang að hreinu vatni, næringu, vernd, heilsugæslu og menntun, og bjargað þannig lífi þeirra.
Bæklinginn má finna hér en einnig er að finna upplýsingar á heimasíðu UNICEF. Nánari upplýsingar má einnig fá hjá framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, Stefáni Inga Stefánssyni.
Loks má geta þess að þeir sem hyggjast minnast UNICEF í erfðaskrá sinni fá ókeypis ráðgjöf frá lögfræðistofunni Lögmönnum Höfðabakka. Sú þjónusta er UNICEF einnig að kosntaðarlausu.