Nemendur FSN styrkja hjálparstarf UNICEF á Haití
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt upp á Sólardaga í febrúar. Þá er hefðbundið skólastarf brotið upp með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá fyrir nemendur. Nokkrir þeirra ákváðu að láta gott af sér leiða í leiðinni og söfnuðu um 50 þúsund krónum fyrir starf UNICEF í þágu þurfandi barna á Haítí.
Til að afla fjárins stóðu nemendur fyrir fatasöfnun í samstarfi við deildir Rauða krossins á Snæfellsnesi. Heilmikið af fötum safnaðist og var ákveðið að slá upp hreinræktaðri Kolaportsstemningu í skólanum þar sem nemendur seldu föt og fylgihluti af miklum móð. Mikil og góð stemming myndaðist fyrir þessu góða framtaki og nemendur, kennarar, gestir og gangandi litu við, versluðu og styrktu um leið afar verðugt málefni.
Salan fór fram úr björtustu vonum skipuleggjenda, en eins og áður sagði söfnuðust tæplega 50 þúsund krónur sem renna óskiptar til hjálparstarfs UNICEF á Haiti. Þau föt sem ekki seldust voru gefin til Rauða krossins sem mun koma þeim þangað sem þeirra er þörf.
Sjá nánar á heimasíðu skólans hér.