UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF, Anthony Lake, vegna máls Omar Khadr sem er fangi í Guantanamo-flóa
„UNICEF hefur áhyggjur af væntanlegum réttarhöldum yfir Omar Khadr, sem er fangi í Guantanamó-flóa. Omar Khadr var handtekinn í Afganistan árið 2002 fyrir glæpi sem hann er sagður hafa framið þegar hann var enn á barnsaldri eða 15 ára gamall. Hann er síðasti barnahermaðurinn í Guantanamo-flóa.
Herkvaðning og notkun barna í átökum er stríðsglæpur og eiga þeir sem eru ábyrgir, þ.e. hinir fullorðnu sem fá börnin til þátttöku, að sæta ákærum. Börnin eru hins vegar fórnarlömb sem þvinguð eru til þátttöku. Eins og UNICEF hefur áður lýst yfir þarfnast fyrrum barnahermaður aðstoðar, endurhæfingar og stuðnings til að aðlagast aftur samfélagi sínu, ekki fordæmingar eða ákæru.
Ákæran á hendur Omar Khadr getur sett hættulegt alþjóðlegt fordæmi fyrir önnur börn sem eru fórnarlömb hernaðarþátttöku. Um þessar mundir fagna Sameinuðu þjóðirnar 10 ára afmæli valfrjálsrar bókunar við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, um þátttöku barna í vopnuðum átökum. Við skorum á allar ríkisstjórnir sem hafa fullgilt bókunina, þar á meðal ríkisstjórn Bandaríkjanna, að heiðra anda og ákvæði bókunarinnar.
Aukinheldur ætti hver sá sem ákærður er fyrir glæp sem hann er sagður hafa framið sem barn að fá viðhlítandi meðferð í samræmi við réttarvenjur vegna mála sem varða ungmenni, sem tryggir þeim sérstaka vernd. Omar Khadr ætti ekki að vera ákærður frammi fyrir herdómstóli. Slíkur dómstóll er hvorki hæfur né er honum skylt að útvega slíka vernd eða heiðra þessar réttarvenjur.”
Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF