Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

UNICEF í viðbragðsstöðu í kjölfar jarðskjálfta á Haítí

©REUTERS/Eduardo MunozAfar öflugur jarðskjálfti, 7,0 stig á Richter-kvarða, hefur valdið miklu tjóni á Haíti. Skjálftinn átti upptök sín um 17 kílómetra frá höfuðborginni Port-au-Prince laust fyrir klukkan 22 að íslenskum tíma í gærkvöldi. Fyrstu upplýsingar benda til þess að mannfall sé mikið, skemmdir á mannvirkjum gríðarlegar og mikil þörf fyrir aðgerðir á sviði rústabjörgunar.

Þrátt fyrir skemmdir á skrifstofu UNICEF í Port-au-Prince eru samtökin í stakk búin til að veita fórnarlömbum hörmunganna neyðaraðstoð. UNICEF mun kappkosta, í náinni samvinnu við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna á svæðinu, við að tryggja íbúum aðgang að ómenguðu vatni, hreinlætisaðstöðu og grunnheilsugæsluþjónustu.

Hægt er að styrkja neyðaraðstoð UNICEF á Haíti hér.

UNICEF mun einnig leggja áherslu á að tryggja börnum nauðsynlega vernd á þessum viðsjárverðu tímum, en börn eru sérstaklega berskjölduð í kjölfar náttúruhörmunga. Í því augnamiði mun UNICEF m.a. leggja sitt af mörkum til að koma lífi barna í sem eðlilegastar skorður sem fyrst. Veigamikill þáttur í því er að börn geti haldið áfram námi og leik meðan forsjáraðilar þeirra koma fótunum undir sig að nýju.

Haíti meðal fátækustu ríkja heims
Fyrir var staða barna og kvenna á Haíti afar bágborin. Haíti er meðal fátækustu landa heims (í 148. sæti af 179 löndum á lífsgæðalista Sameinuðu þjóðanna). Þjóðin glímir við afleiðingar margra ára sögu ofbeldis, óöryggis og óstöðugleika, auk þess sem hún hefur orðið fyrir barðinu á hverjum náttúruhamförunum á fætur öðrum á undanförnum árum. Má í því sambandi minnast afleiðinga skelfilegs fellibyljatímabils árið 2008 sem þjóðin sér enn ekki fyrir endann á.

Nánar má fræðast um stöðu barna á Haíti hér (enska).

Hér má lesa ávarp framkvæmdastýru UNICEF, Ann M. Veneman, vegna jarðskjálftanna á Haíti (enska).