Neyðarsöfnun fyrir Haítí
Geigvænleg eyðilegging blasir við á Haítí í kjölfar þess að öflugur jarðskjálfti reið yfir landið síðastliðinn þriðjudag. UNICEF á Íslandi leitar til almennings eftir stuðningi við hjálparstarf samtakanna í þágu barna á Haítí. Í þeim tilgangi hefur verið opnað fyrir sérstök söfnunarsímanúmer auk þess sem tekið er á móti framlögum hér á síðunni.
Þó erfitt sé að henda nákvæmar reiður á umfangi hamfaranna að svo stöddu er ljóst að ástandið á Haítí er grafalvarlegt og að þörf er á meiriháttar neyðaraðstoð samhliða leitar- og björgunarstörfum. Fyrstu upplýsingar gefa til kynna að mannfall sé mikið og eyðilegging útbreidd. Höfuðborgin Port-au-Prince varð verst úti í skjálftanum en fleiri þéttbýlisstaðir, eins bæirnir Jacmel og Carrefour, eru líka illa leiknir. Hver klukkustund skiptir máli þegar kemur að því að bjarga fólki úr húsarústum þannig að starf leitar- og björgunarsveita er í forgangi fyrst um sinn. Sjúkrahús á svæðinu eru illa skemmd eða hrunin og anna engan veginn fjölda slasaðra.
Kallað eftir stuðningi frá Íslendingum
UNICEF á Íslandi kallar eftir stuðningi almennings til að mæta hinni brýnu þörf fórnarlamba hamfaranna. Börn eru afar berskjölduð fyrir öllum þeim hættum sem fylgja í kjölfar náttúruhamfara. Það er UNICEF því mikið metnaðarmál að bregðast hratt og örugglega við neyðinni sem nú ríkir á Haítí.
Hægt er að styðja við neyðaraðgerðir UNICEF með því að fara á íslenska heimasíðu samtakanna, unicef.is, eða hringja í eftirfarandi söfnunarnúmer:
908-1000 fyrir 1000 króna framlag
908-3000 fyrir 3000 króna framlag
908-5000 fyrir 5000 króna framlag
Hjálpargögn UNICEF berast til Haítí
Fyrsta sending af hjálpargögnum frá UNICEF kemur til landsins í dag. Sendingin inniheldur 10 þúsund neyðarskýli, 4.600 vatnsbrúsa, 5,5 milljónir vatnshreinsitafla, 556.000 saltlausnir til að koma í veg fyrir ofþornun af völdum niðurgangs, ásamt fleiri gögnum sem geta sinnt grunnþörfum allt að 10 þúsund fjölskyldna. Hjálpargögn fyrir 20 þúsund fjölskyldur til viðbótar verða send á næstu dögum.