UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
UNICEF tekur þátt í gríðarmiklum alþjóðlegum neyðaraðgerðum til þess að aðstoða allt að 3,5 milljónum mann
a sem urðu illa úti í jarðskjálftanum á Haítí þann 12. janúar.
Sjáið myndband um ástandið á vettvangi hér.
Hlustið á viðtal við starfsmann UNICEF sem staðsettur er á Haítí.
Lífsnauðsynleg hjálpargögn berast nú í stórum stíl til Haítí í gegnum birgðanet UNICEF og samstarfsstofnanna. Ástandið á vettvangi er hins vegar svo alvarlegt að hjálpargögnin ná vart að mæta hinni gríðarlegu þörf sem þar hefur skapast. Aukning á aðstoð er lífsnauðsynleg fyrir íbúa Haítí. Lítið sem ekkert framboð er á rennandi vatni á jarðskjálftasvæðunum eins og stendur, en skortur á ómenguðu rennandi vatni getur haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. Þær afleiðingar bitna mest á börnunum og ber þá helst að nefna sjúkdóma eins og kóleru, taugaveiki, beinbrunasótt og malaríu.
UNICEF náði fyrst í gær að ná sambandi við alla starfsmenn sína í landinu. ,,Þau eru öll heil að húfi,” sagði yfirmaður neyðaraðgerða UNICEF, Louis-George Arsenault. ,,Þau hafa þó gengið í gegnum miklar hörmungar.”
Mikilvægt að mæta þörfum barna
Um 46% íbúa á Haítí eru yngri en 18 ára og búast má við því að mikill fjöldi þessara barna og unglinga hafi upplifað aðskilnað við foreldra sína, missi náinna ættingja og eyðileggingu heimila sinna. Forgangsatriði í neyðaraðgerðum UNICEF er að börn fái þá umönnun, vernd og aðstoð sem þau þurfa. Brýnast er að tryggja aðgengi að ómenguðu vatni, heilsugæslu, skjóli og næringu, með því að opna samskipta- og flutningsleiðir og útvega hjálpargögn eins og segldúka, fötur, eldunaráhöld, næringarefni, lyf og vatnshreinsitöflur. Einnig er brýnt að huga að vernd barna og aðgengi þeirra að menntun og félagslegum og sálrænum stuðningi.
Þörf er á aukinni aðstoð
Búist er við að fjöldi dauðsfalla muni hækka ef aðstoð í formi lyfja, húsaskjóls, aðgengis að ómenguðu vatni og uppbyggingar á hreinlætisaðstöðu eykst ekki á næstu dögum. Þörfin á auknu fjármagni fyrir neyðaraðgerðir er því gríðarleg. UNICEF á Íslandi hóf söfnun fyrir fórnarlömb jarðskjálftanna í gær og voru Íslendingar fljótir að taka við sér. Á fyrstu klukkutímunum höfðu safnast yfir milljón krónur.
Hægt er að styðja við neyðaraðgerðir UNICEF með því að hringja í eftirfarandi söfnunarnúmer:
908-1000 fyrir 1000 króna framlag
908-3000 fyrir 3000 króna framlag
908-5000 fyrir 5000 króna framlag
Fyrsta sending neyðargagna
Sending hjálpargagna á vettvang hefur reynst torsótt verkefni, en vegir og rafmagns- og símalínur eyðilögðust í jarðskjálftanum. UNICEF hefur sent tvo flugvélafarma með hjálpargögnum sem duga 30.000 fjölskyldum á Haítí, í samstarfi við Rauða krossinn, Matvælaáætlun SÞ og fleiri samstarfsstofnanir. Fleiri birgðasendingar eru áætlaðar, með flugi, skipum og landleiðina frá Dómínikanska lýðveldinu.
Birgðastöð UNICEF í Dubai mun á morgun flytja birgðir til Haítí í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, meðal annars stór tjöld sem nota má sem skólastofur og birgðageymslur, segldúkar og skólagögn handa þeim börnum sem verst urðu úti í jarðskjálftanum. Birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn vinnur einnig hörðum höndum að því að koma hjálpargögnum til Haítí.