Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

2,5 milljónir króna hafa safnast

© UN Photo/AbassiÍbúar Port-au-Prince og annara svæða á Haítí sem fóru illa út úr jarðskjálftanum þann 12. janúar sofa nú margir undir berum himni, umkringdir rústum heimila sinna.

Hér er hægt að sjá myndband um neyðaraðgerðir UNICEF á Haítí.

Að mati UNICEF er þörf á 120 milljónum bandaríkjadala til þess að fjármagna neyðar- og uppbyggingaraðgerðir samtakanna á Haítí næstu sex mánuðina. Þessi fjárhæð er hluti af áætlaðri heildarfjárþörf fyrir neyðar- og uppbyggingarstarf stofnana Sameinuðu þjóðanna yfir næstu sex mánuði sem hljóðar upp á 562 milljónir bandaríkjadala.

Brýn þörf er á aðstoð á Haítí. Óttast er að tugþúsundir íbúa landsins hafi látið lífið í hamförunum og margir fleiri séu slasaðir.

Aðgangur að ómenguðu vatni mikilvægastur
Síðan jarðskjálftinn reið yfir þann 12. janúar hefur rústaleit verið forgangsatriði. UNICEF hefur tekið að sér verkefni sem miða að því að tryggja aðgengi að ómenguðu vatni og hreinlætisaðstöðu ásamt því að útvega næringu handa yngstu börnunum, sjúkragögn og bráðabirgðaskýli.

,,Vatn er mikilvægusta nauðsynjavaran. Fólkið á Haítí getur ekki beðið eftir aðgengi að ómenguðu vatni mikið lengur,” sagði fjölmiðlafulltrúi UNICEF, Patrick McCormick.

Flugvélafarmur með hjálpargögnum frá UNICEF lenti á Port-au-Prince flugvellinum snemma föstudagsmorgun 15. janúar, en farmurinn innihélt vatnsbrúsa, vatnshreinsitöflur og sölt til að hindra uppþornun sem eru nauðsynleg til þess að takast á við mögulegar afleiðingar af niðurgangi, sérstaklega meðal ungra barna.

Tvær aðrar flugvélar með 70 tonn af hjálpargögnum eins og tjöldum, segldúkum og lyfjum munu lenda í Santo Domingo í Dóminíska lýðveldinu nú um helgina. Birgðirnar verða sendar landleiðina til Haítí.

Dreifing hjálpargagna hefur hafist í samfélögum sem urðu illa úti í jarðskjálftanum, en erfiðlega hefur reynst að koma hjálpargögnum til þeirra sem mest eru þurfandi. Sérfræðingar UNICEF á sviði flutninga eru á vettvangi til þess að vinna úr þeim hindrunum sem standa fyrir dreifingu hjálpargagna á hamfarasvæðunum. Starfsfólk UNICEF vinnur einnig með öðrum hjálparstofnunum að birgðaflutningi og dreifingu.

Öryggi birgða
Í ljósi frétta af stuldi á matarbirgðum í Port-au-Prince hefur öryggisgæsla á birgðastöðvum verið aukin. ,,Við munum biðja friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna hér á Haítí um að tryggja öryggi birgða UNICEF og að hjálpargögn komist til barnanna sem á þeim þurfa að halda,” sagði Patrick McCormick.