Átakanleg frásögn UNICEF-starfsmanns frá Haítí
Það er erfitt að gera sér í hugarlund hvernig ástandið er á Haítí nú þegar vika er liðin frá því að hinn gríðarlega öflugi jarðskjálfti skók eyjuna með skelfilegum afleiðingum. Upplýsingafulltrúi UNICEF, Tamar Hahn, er stödd á Haítí og lýsir því sem fyrir augu ber á heimasíðu UNICEF í Bretlandi. Lýsingar hennar eru vægast sagt átakanlegar.
Meðal þess sem Tamar segir frá er heimsókn hennar á bráðabirgðaspítala þar sem verið er að fjarlægja útlimi af fólki sem slasaðist alvarlega í jarðskjálftanum. Þar hittir hún einnig börn sem hafa orðið fyrir ólýsanlegu áfalli, jafnvel hoft upp á foreldra sína deyja, og hafa engan til að annast þau.
„Það eru mögulega hundruð eða jafnvel þúsundir barna í sömu sporum í Port au Prince, ýmist á spítulum eða ráfandi um göturnar án þess að hafa aðgang að vatni, mat eða vernd gegn ofbeldi og misnotkun," segir Tamar. „Jafnvel þó þessi börn hafi ekki orðið fyrir líkamlegum skaða hafa þau orðið fyrir stórkostlegu andlegu áfalli sem mun skilja eftir ör á sál þeirra það sem eftir er ævinnar. Yfir þeim vofir hættan á vannæringu og sjúkdómum og þau eru berskjölduð fyrir kynferðislegri misnotkun og mansali.“
„UNICEF vinnur nú að undirbúningi tveggja athvarfa þar sem pláss er fyrir 200 börn [...],“ heldur Tamar áfram. „Í athvörfunum fá börnin öruggt skjól auk þess sem þeirra mest aðkallandi þörfum verður sinnt meðan reynt er að hafa upp á fjölskyldum þeirra. Í þeim tilfellum þar sem ekki reynist unnt að hafa upp á fjöskyldum barnanna verður að finna aðrar lausnir.“
Lesa má frásögn Tamar Hahn í heild sinni á ensku hér.