Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

Varnarlaus börn á Haítí

©UNICEF/2010 Sterkur eftirskjálfti skók Haítí í gærmorgun og jók hann enn frekar á streitu og hræðslu barna og fjölskyldna þeirra á jarðskjálftasvæðunum. Neyðaraðstoð heldur áfram á hamfarasvæðunum. Símanúmer í söfnun UNICEF eru 908-1000, 908-3000 og 908-5000. Einnig er hægt að gefa framlög hér á síðunni.

Sjáið myndband frá neyðaraðgerðum UNICEF á sviði vatns og hreinlætis hér.

Nú þegar meira en vika er liðin frá jarðskjálftanum verður eyðilegging hans sífellt ljósari. Jarðskjálftinn tók ekki einungis líf og eyðilagði heimili, vinnustaði, skóla og sjúkrahús, heldur lamaði hann nær allt þjónustunet, vegi, rafmagnslínur og byggingar sem nota gat fyrir dreifingu hjálpargagna.

Tvær stærstu áskoranirnar fyrir starfsemi UNICEF eru að ryðja úr vegi hindrunum á dreifingu hjálpargagna og samræma aðgerðir hinna mörgu hjálparstofnanna sem starfa á vettvangi til þess að tryggja að allir fái aðstoð.

Dreifing á vatni
Í samstarfi við önnur hjálparsamtök vinnur UNICEF nú hörðum höndum að því að takast á við hindranir í flutningi hjálpargagna. Dreifing hjálpargagna á við vatn, matvæli, hreinlætisgögn og sjúkragögn er nú í örum vexti í Port-au-Prince.

,,Við erum nú að reyna að ná til allra borgarhluta Port-au-Prince,” segir Julien Atchade, sérfræðingur UNICEF á sviði vatns og hreinlætis. ,,Við höfum sett nokkra staði í forgang, svo sem munaðarleysingjaheimili, heilsugæslustöðvar og stærri bráðabirgðabúðir fyrir fólk sem hrakist hefur frá heimili sínu, þar sem við höfum þegar sett upp 72 stöðvar þar sem nálgast má hreint vatn.”

Varnarlaus börn
UNICEF og samstarfsaðilar einblína nú á að vernda og aðstoða þau börn sem misst hafa foreldra sína eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar. Komið hefur verið upp ,,öruggum svæðum” fyrir þúsund börn undir fimm ára aldri og þeim svæðum fjölgar sífellt. 

Skráning barna sem hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína hefur hafist. Það er mikilvægt að börnin verði sameinuð fjölskyldum sínum eða forráðamönnum sem þau þekkja og treysta hið fyrsta. Heimili og stofnanir sem sjá um börn sem misst hafa foreldra sína eiga í miklum erfiðleikum með að veita þá þjónustu sem þörf er á.

,,Við eigum í miklum erfiðleikum með finna matvæli, lyf og bleyjur handa börnunum sem búa hjá okkur,” sagði Edith Salome, starfsmaður á munaðarleysingjaheimili í Port-au-Prince. ,,Hluti byggingarinnar er eyðilagður og því er ekki mikið um pláss þessa stundina.”