árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Fimm flugfarmar af hjálpargögnum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hafa borist til Haítí síðan að jarðskjálftinn reið yfir. Ásamt þeim hafa neyðarbirgðir UNICEF sem fyrir voru á Haítí verið nýttar. Fimm vélar til viðbótar koma til landsins á næstu dögum með lífsnauðsynlegar vörur svo sem tjöld og skýli, drykkjarvatn, heilsu- og hreinlætisbúnað og matvæli.
Lífsnauðsynleg vatnsdreifing
UNICEF dreifir nú drykkjarvatni til um 150 þúsund manna en til stendur að auka dreifingu verulega á næstunni. UNICEF hefur sett í forgang daglega dreifingu vatns til sjúkrahúsa, barnaheimila og tjaldbúða þar sem fjölskyldur sem misst hafa heimili sín dvelja . Hreint drykkjarvatn er mikilvægasta forvörnin gegn því að upp komi sjúkdómsfaraldrar og önnur neyðaralda skelli á Haítí-búum.
Börn sett í forgang
Fyrsta forgangsatriði UNICEF er að ná til barna og tryggja þeim fæðu, heilsugæslu, öruggt skjól og umönnun. UNICEF og samstarfsaðilar vinna hörðum höndum að því að tryggja að fyrir vikulok njóti öll börn undir fimm ára aldri sem hafa misst eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar umönnunar og næringar í öruggu umhverfi. Börn sem hafa orðið viðskila við ættingja sína eru skráð og reynt er að sameina þau fjölskyldum sínum eða öðrum nákomnum sem þau þekkja og treysta. Hættan á mansali og annarri misnotkun á börnum á hamfarasvæðinu er raunveruleg og alvarleg að mati UNICEF.
Söfnun UNICEF á Íslandi
Síðan söfnun UNICEF á Íslandi fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí hófst þann 14. janúar hafa um fjórar milljónir íslenskra króna safnast. Greinilegt er að hugur Íslendinga liggur hjá Haítíbúum á þessum miklu neyðartímum. Leggja má söfnuninni lið á vefsíðunni www.unicef.is, eða með því að hringja í 908-1000 fyrir 1.000 kr. framlag, 908-3000 fyrir 3.000 kr. framlag, eða 908-5000 fyrir 5.000 kr. framlag.
Þekktir einstaklingar láta til sín taka fyrir börn á Haítí
Velgjörðarsendiherrar UNICEF á borð við Miu Farrow, Angelique Kidjo, Ricky Martin, Raníu Jórdaníudrottningu, Shakiru og Ewan McGregor hafa lagt söfnun UNICEF lið. Hér má sjá myndband þar sem Ewan McGregor talar fyrir hönd barna í neyð á Haítí.