Viðamikið bólusetningarátak hafið á Haítí
UNICEF hefur hafið umfangsmikið bólusetningarátak á Haítí í samstarfi við heilbrigðistráðuneyti landins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Átakinu er ætlað að ná til rúmlega hálfrar milljónar barna undir sjö ára aldri sem verða bólusett gegn mislingum, rauðum hundum, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta.
Mikill fjöldi þeirra Haítí-búa sem lifði af jarðskjálftann 12. janúar hefst nú við í yfirfullum bráðabirgðabúðum. Aðstæður í búðunum eru þannig að mikil hætta er á útbreiðslu sjúkdóma.
Fyrsti áfangi bólusetningarátaksins hófst á Sylvio Cator knattspyrnuleikvanginum í miðborg Port-au-Prince í gær.
Bólusetningarteymin munu í kjölfarið heimsækja fleiri búðir fyrir heimilislausa áður en haldið er til annarra svæða sem urðu fyrir barðinu á jarðskjálftanum.
Hægt að lesa nánar um bólusetningarátakið hér.
Hér má einnig sjá myndband þar sem fjallað er um átakið.