English version

Neyðin á Haítí er neyð barna

Neyðin á Haítí er að stórum hluta neyð barna. Nærri 40 prósent Haítí-búa eru yngri en 14 ára og helmingurinn er yngri en 18 ára. Ýmsar ógnir steðja að fjölda barna á hamfarasvæðinu, s.s. næringar- og vatnsskortur, sjúkdómar og misnotkun og mansal.

Vatnsbornir sjúkdómar, þá sér í lagi niðurgangspestir, eru einn af algengustu dánarvöldum barna undir fimm ára aldri. Hægt er að koma í veg fyrir dauðsföll fjölmargra barna með því að tryggja þeim aðgang að hreinu drykkjarvatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu. UNICEF leggur því mikla áherslu á þessa þætti í hjálparstarfinu á Haítí. Í gær (28. janúar) dreifði UNICEF vatni til um 440 þúsund manns og stefnt er að því að tryggja yfir hálfri milljón Haítí-búa reglulegan aðgang að vatni á næstu dögum.

Sjúkdómar og næringarskortur ógna heilsu og lífi barna
Í kjölfar náttúruhamfara er mikil hætta á að barnasjúkdómar eins og mislingar og barnaveiki breiðist út. UNICEF mun í vikunni, í samstarfi við heilbrigðismálaráðuneytið á Haítí, hrinda af stað bólusetningarátaki þar sem um 600.000 börn undir fimm ára aldri verða bólusett gegn mislingum, barnaveiki og stífkrampa. Sérstök áhersla verður lögð á að ná til barna yngri en tveggja ára.

Skortur á næringu, sér í lagi meðal barna yngri en tveggja ára, getur orsakað óafturkræf heilsu- og þroskavandamál. Tryggja verður að vannærð börn á hamfarasvæðinu fái viðunandi meðferð og næringu. Í samstarfi við Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur rúmlega 22 þúsund matarpökkum verið dreift í tjaldbúðum í nágrenni bæjarins Jacmel. Stefnt er að því að dreifa sérstökum næringarmáltíðum til 300.000 þurfandi barna á aldrinum 6 mánaða til 3 ára á næstu dögum.

Verkefni UNICEF á sviði barnaverndar halda áfram. Unnið er að því að koma veglausum börnum í öruggt skjól og sameina þau ættingjum sínum ef kostur er. UNICEF hefur tekið út 102 munaðarleysingjaheimili og stofnanir til að tryggja góðan aðbúnað.

Fimm milljónir í söfnun UNICEF á Íslandi
Síðan söfnun UNICEF á Íslandi fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí hófst þann 14. janúar hafa fimm milljónir króna safnast. Leggja má söfnuninni lið hér eða með því að hringja í 908-1000 fyrir 1.000 kr. framlag, 908-3000 fyrir 3.000 kr. framlag, eða 908-5000 fyrir 5.000 kr. framlag.