Vissir þú að...

45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.

Þú ert hér:  

Sex mánuðum frá jarðskjálftanum á Haítí eru börn enn í hættu og þurfa aðstoð

©UNICEF/RamonedaSex mánuðum eftir að einn stærsti jarðskjálfti í 200 ár á Haítí olli mikilli eyðilegginu er það hjálparstarfsfólki mikil áskorun að mæta þörfum þeirra 800 þúsund barna og fjölskyldna þeirra sem þurfa á hjálp að halda.

Jarðskjálftinn olli 220 þúsund dauðsföllum og yfir 300 þúsund særðust í landi sem þegar var mjög viðkvæmt fyrir. Um 2 milljónir manna misstu heimili sín og af þeim búa 1,6 milljón manns í búðum við afar þröngan kost. Innra kerfi landsins lamaðist þar sem 60 prósent af opinbera kerfinu urðu rústir einar.

„Jarðskjálftinn hafði sérstaklega slæm áhrif á börn og ekki sést fyrir endann á því,“ sagði Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF. „UNICEF og samstarfsaðilar vinna hörðum höndum hvern dag til að bjarga lífum barna og hjálpa þeim að byggja upp framtíð sína.“

Í dag er verið að koma vatni til 1,2 milljóna manna í samstarfi við önnur hjálparsamtök, en UNICEF sér um að veita 330 þúsund manns hreint vatn. Yfir 275 þúsund börn hafa verið bólusett gegn helstu barnasjúkdómunum. Næringarverkefni UNICEF veitir mat til 550 þúsund einstaklinga, þó aðallega barna undir fimm ára og kvenna með barn á brjósti. Um 2.000 alvarlega vannærð börn fá nú mat og umönnun á næringarmiðstöðvum sem bjargar lífum þeirra. Um 500 þúsund börn hafa fengið skólagögn og 5.300 kennarar og starfsfólk skóla hafa hlotið þjálfun.

Menntakerfið fór illa í jarðskjálftanum þar sem 3978 skólar eyðilögðust eða 80 prósent allra skóla á jarðskjálftasvæðinu. Þetta jók mjög á vandann þar sem fyrir jarðskjálftann höfðu einungis helmingur barna á skólaaldri sótt skóla.

Fyrir þremur mánuðum hóf UNICEF og ríkisstjórn landsins átak um að koma öllum börnum á Haítí í skóla. Fjöldi tímabundna skóla hafa hægt og sígandi komið jafnvægi og öryggi inn í líf barna. Þeir þjóna einnig því hlutverki að fylgjast með heilsu barna og veita þeim vernd. Áhersla er nú lögð á að veita fleiri börnum námstækifæri um allt land.

Að riðja burt rústum, finna betri stað fyrir heimilislausar fjölskyldur sem hafa sest að í skólum og hraða uppbyggingu skóla er í forgangi hjá UNICEF og samstarfsaðilum til að tryggja megi nægt skólapláss fyrir börn áður en næsta skólaár hefst. UNICEF vinnur einnig með ríkisstjórninni til að létta á þeirri byrði sem skólagjöld eru, en 90 prósent skóla taka skólagjöld og eru ekki almenningsskólar.

Nánar má lesa um hjálparstarf UNICEF í skýrslu sem kemur út til að minnast þess að sex mánuðir eru liðnir frá jarðskjálftunum á Haítí; Children of Haiti: Milestones and looking forward at six months.

Styrkja neyðarstarfið á Haítí.