Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

250.000 krónur söfnuðust á tónleikum fyrir Haítí

Tónlistarvefurinn Gogoyoko og tónleikastaðurinn Sódóma Reykjavík, í samstarfi við Hljóð X og sex íslenskar hljómsveitir, stóðu fyrir tónleikum í gær til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí. Alls söfnuðust 250.000 krónur og renna þær óskiptar til hjálparstarfsins.

Hljómsveitirnar sem stigu á stokk á Sódóma Reykjavík í Tryggvagötu í gær voru: 13, Ourlives, Morðingjarnir, Mugison, kimono og Bloodgroup.

Góð aðsókn var á tónleikana og er tónleikagestum að sjálfsögðu einnig þakkaður stuðningurinn.

Alls hafa íslendingar gefið fimm milljónir króna til hjálparstarfs UNICEF á Haítí frá 14. janúar sl.