Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Hin margfalda neyð barna á Haítí

©UNICEF/2010Aðstoð berst nú til barna sem fóru illa út úr jarðskjálftanum sem reið yfir Haítí þann 12. janúar. Gríðarleg neyð ríkir þó enn á Haítí. Afleiðingar hörmunganna, þar með talið áhrif jarðskjálftans á heilsu og öryggi barna, bætast ofan á langvarandi ástand fátæktar og óstöðugleika á Haítí. 

Sjáið hér upplýsingamyndband frá UNICEF þar sem neyðin eftir jarðskjálftann er sett í samhengi við hin miklu efnahagslegu og félagslegu vandamál sem Haítíbúar þurftu að glíma við fyrir skjálftann.

”Jafnvel fyrir jarðskjálftann var heilbrigðiskerfið veikburða og ekki var náð til nógu margra barna með bólusetningar,” sagði yfirmaður UNICEF á sviði heilsuverndar ungbarna og nýbakaðra mæðra, Renee van de Weerdt. “Tíðni vannæringar er einnig tiltölulega há,” bætti hún við. “Við vitum að hér er um að ræða mjög berskjölduð börn.”

Á hinu mikilvæga sviði vatns- og hreinlætismála var aðstaðan á Haítí mjög bágborin.

,,Haítí er eitt af fáum löndum í heiminum þar sem aðgengi fólks að hreinlætisaðstöðu hefur minnkað á undanförnum arum,” sagði yfirmaður UNICEF á sviði vatns og hreinlætis, Clarissa Brocklehurst. ,,Fjöldi fólks sem fyrir jarðskjálftann hafði aðgengi að það sem við myndum nefna bættri heinlætisaðstöðu var aðeins um 19%.”

Lífsnauðslegar neyðaraðgerðir ná nú til barna
Forgangsverkefni UNICEF er að veita börnum aðstoð og vernd. Síðan jarðskjálftinn reið yfir hafa sex flugvélafarmar af neyðargögnum frá UNICEF borist til Haítí. Fleiri flugvélar er á leiðinni á næstu dögum með hjálpargögn á sviði vatns, hreinlætis, heilsuverndar og næringar, ásamt tjöldum og segldúkum sem nota má sem skýli.

Brýn þörf eru á efnivið í skýli. Hundruðir bráðabirgðabúða eru nú á víð og dreif um Port-au-Prince og metið er að um 800.000 til 1 milljón manna hafi misst heimili sín og séu nú á vergangi. UNICEF hefur flutt inn tjöld sem notuð verða sem næringarmiðstöðvar fyrir yngstu börnin, heilsugæslustöðvar og bólusetningarmiðstöðvar. 

Aðgangur að ómenguðu vatni er einnig gífurlega mikilvægt atriði á Haítí í kjölfar hamfaranna. UNICEF nær nú til meira en 185.000 manna með dreifingu á vatni.

Heilsuvernd og verndun berskjaldaðra barna
UNICEF, í samstarfi við heilbrigðismálaráðuneytið á Haítí, mun í vikunni hrinda af stað bólusetningarátaki þar sem um 600.000 börn undir fimm ára aldri verða bólusett gegn mislingum, stífkrampa og blóðkreppusótt.

UNICEF styður einnig við aðgerðir sem miða að því að hindra mansal á börnum og ólöglegan flutning þeirra.

Löng reynsla UNICEF í neyðarástandi sem þessu sýnir að mikilvægt er að tryggja að börn sem orðið hafa viðskila við foreldra sína, eða misst þá, hljóti endurfundi við eftirlifandi fjölskyldumeðlimi sem fyrst. Til þess að greiða þessum endurfundum leið hefur UNICEF sett á fót örugg svæði og skráningarkerfi fyrir börn sem eru ein á vergangi.

“Samband UNICEF við Haítí hefur varað síðan 1949,” sagði Dan Seymour. “UNICEF mun vera til staðar fyrir börnin á Haítí í langan tíma enn.”