Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Sextíu og fjórir nýir heimsforeldrar á Akranesi

Á undanfarinni viku hafa 64 Skagamenn gerst heimsforeldrar. Bætast þeir þar með í hóp rúmlega 300 Akurnesinga sem styrkja UNICEF með mánaðarlegum framlögum í gegnum heimsforeldraverkefnið og styðja þannig við starf samtakanna í þágu bágstaddra barna um allan heim.

Starfsfólk frá UNICEF gekk í hverfi á Akranesi í síðustu viku til að kynna UNICEF og heimsforeldraverkefnið með þessum ánægjulega árangri. Eru heimsforledrar í bæjarfélaginu nú orðnir alls 369 talsins, eða tæplega 8% allra íbúa sveitarfélagsins 18 ára og eldri.

Allt frá því að íslensk landsnefnd fyrir UNICEF var stofnuð árið 2004 hafa heimsforeldrar verið hjartað í starfseminni. Á síðasta ári komu 64% fjárframlaga til samtakanna frá þessum stóra hópi Íslendinga sem augljóslega lætur velferð og réttindi barna sig varða. Hvergi eru fleiri heimsforeldrar miðað við höfðatölu en á Íslandi og geta Íslendingar svo sannarlega verið stoltir af þeirri staðreynd.

UNICEF á Íslandi þakkar öllum heimsforeldrum, hvar sem þeir búa á landinu, kærlega fyrir stuðninginn fyrir hönd þeirra barna sem af honum njóta góðs og hvetur sem flesta til að slást í hópinn.