þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.
Þú ert hér:
UNICEF sendi í gær hjálpargögn með sex vörubílum frá Tashkent, höfuðborg Úsbekistan, til flóttafólks sem flúið hefur átökin í Kyrgistan. Átökin hófust síðasta fimmtudag.
Um er að ræða 76 tjöld, 2.210 teppi, 25 heilsugæslupakka sem innihalda sárabindi, sápur, klúta, bleyjur, o.fl., um 500 pakka með eldhúsáhöldum, 1.100 boli, 900 pakka af vatnshreinsitöflum og 1764 vatnsdunka.
Flóttafólkið er staðsett í Fergana dalnum nærri landamærum Úsbekistan og Kyrgistan. Stjórnvöld í Úsbekistan hafa opnað grunn- og menntaskóla til að hýsa flóttafólkið sem streyma frá Osh og Jalalabad, hinum megin við landamærin í Kyrgistan.
Miðað við opinberar tölur áætlar UNICEF að fjöldi flóttafólks sé í um 100 þúsund og þar af eru 90 prósent konur, börn og gamalmenni.
Verið er að undirbúa flutning fleiri hjálpargagna frá Úsbekistan og fleiri löndum alþjóðlega.
UNICEF hefur þungar áhyggjur af aðstæðum barna í Suður-Kyrgistan og hvetur alla hlutaðeigandi aðila að vernda þau.