Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

UNICEF dreifir 40 tonnum af hjálpargögnum í Kirgistan

Þrátt fyrir auknar áhyggjur af öryggismálum hefur UNICEF hafið stórfellda dreifingu hjálpargagna til fólks á flótta undan ofbeldinu í Kirgistan. Á sama tíma hefur hluti af fjölskyldum af kynþætti Úsbeka, sem flúðu yfir til nágrannalandsins Úsbekistan, fengið pláss í flóttamannabúðum sem UNICEF styður.

Dauðsföll yfir 200 manna eru staðfest og 2.000 hafa særst vegna ofbeldisins sem braust út í suðurhluta Kirgistan 10. Júní síðastliðinn. Fjölmiðlar og bráðabirgðastjórn landsins telja að tala látinna sé mun hærri. Um 90% þeirra sem eru á vergangi eru börn, konur og gamalt fólk og bendir margt til þess að fjöldi barna í flóttamannabúðum hafi orðið fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi.

Samkvæmt bráðabirgðastjórninni og Sameinuðu þjóðunum eru að minnsta kosti 300.000 manns á flótta innan Kirgistan og nærri 100.000 manns hafa flúið yfir landamærin til Úsbekistan.

40 tonn af UNICEF-hjálpargögnum hafa nú borist til borganna Jalalabad og Osh þaðan sem þeim er dreift til þurfandi fjölskyldna.

Hér er hægt að fræðast nánar um aðgerðir UNICEF í Kirgistan (á ensku).