Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

Metþátttaka í UNICEF-hreyfingunni

Grunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfingin, eflist með hverju árinu sem líður. Það sem af er þessu ári hafa 25 skólar og frístundaheimili skráð sig til þátttöku, en hægt er að framkvæma verkefnið hvenær árs sem er. Tæplega fjögur þúsund nemendur hafa tekið þátt í verkefninu í ár.

Nemendur eins þátttökuskólans, Dalvíkurskóla, söfnuðu rúmlega 600 þúsund fyrir UNICEF með þátttöku sinni.

UNICEF-hreyfingin er skemmtilegt verkefni fyrir skóla þar sem kennarar nota fræðsluefni frá UNICEF til að fræða nemendur um jafnaldra þeirra í öðrum heimshlutum. Skólinn skipuleggur svo í kjölfarið íþróttadag þar sem nemendur geta safnað fé fyrir starfsemi UNICEF í þágu barna með því að safna áheitum hjá sínum nánustu. Verkefnið hefur verið starfrækt síðan árið 2008 og sífellt fleiri skólar taka það upp á sína arma á ári hverju.

Helsta markmið UNICEF með verkefninu er að það stuðli að vitundarvakningu meðal barna og ungmenna um þróunarmál, réttindi barna, og lífskilyrði barna víðs vegar í heiminum.

Markmiðið er einnig að verkefnið sé valdefling fyrir íslensk skólabörn og gott tækifæri fyrir þau til að sýna vilja sinn í verki í réttindamálum barna. Þannig staðsetjum við umræðuna um þróunarmál og réttindi barna kyrfilega í grasrót þjóðfélagsins og kennum börnum okkar að grípa til aðgerða þegar þau standa andspænis vandamálum. Þessutan er verkefnið virk fjáröflun fyrir starf UNICEF í þágu þurfandi barna um allan heim, en rúmlega þrjár milljónir söfnuðust í gegnum verkefnið á síðasta ári.