UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.
Þú ert hér:
Um 400 þúsund manns hafa nú misst heimili sín vegna átakanna í Suður-Kirgistan. UNICEF hefur varað við því að fjölskyldur tvístrist og að börn verði ein og umkomulaus.
Yfirmaður UNICEF í Kirgistan, Jonathon Veitch, lýsti áhyggjur sínum yfir þeim þúsundum fjölskyldna sem hafa tvístrast. „90 prósent flóttafólks sem flúið hafa til Úsbekistan eru konur, börn og eldra fólk.“
„Fjölskyldur verða að fá hjálp til að sameinast eins fljótt og hægt er.“
UNICEF veitir nú neyðaraðstoð til flóttafólks í Kirgistan og Úsbekistan. Mikill vatns- og hreinlætisvandi steðjar að fólki í flóttamannabúðum í Úsbekistan. Veitch sagði að niðurgangspestir væru að brjótast út í Suður-Kirgistan og bærust þaðan til Úsbekistan. „Við fáum fleiri hjálpargögn til Osh yfir helgina, en ýmis öryggisatriði hamla hjálparstarfi í Kirgistan.“
Yfirmaður UNICEF í Úsbekistan, Jean-Michel Delmotte, sem er nýkominn frá landamærunum í Austur-Úsbekistan sagði að hann hefði séð hundruð barna þjást andlega og líkamlega. „Það tekur á að sjá slíkt og UNICEF mun senda ráðgjafa eins fljótt og auðið er til að hjálpa til við hina miklu sálrænu aðstoð sem börnin þurfa á að halda.“