UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Leo Messi, hjá knattspyrnuliðinu Barselóna og argentíska landsliðinu, fór í fyrstu vettvangsheimsókn sína í gær með UNICEF síðan hann var skipaður velgjörðasendiherra samtakanna í mars síðastliðnum.
Sjá myndband frá heimsókn Messi til Haítí hér.
Messi fór til Haítí til að vekja athygli á þeim erfiðleikum sem börn á Haítí standa frammi fyrir, en einnig á árangrinum sem þegar hefur náðst í uppbyggingarstarfinu nú þegar um hálft ár er liðið frá jarðskjálftanum í landinu.
Messi heimsótti Carrefour Aviation, tjaldbúðir þar sem 50.000 heimilislausir Haítíbúar hafast við. Hann fékk einnig tækifæri til að heimsækja hjálparteymi Sameinuðu þjóðanna frá Argentínu og heyra frá fyrstu hendi reynslu þeirra af að reka spítala eftir jarðskjálftana á Haítí.
Messi kom við á skrifstofu UNICEF og ræddi þar við starfsfólkið um hjálpar- og uppbyggingarstarfið, en hamfarirnar ollu 220.000 dauðsföllum og skildi höfuðborgina eftir í rústum.
Messi skaust upp á stjörnuhiminn fótboltaheimsins eftir tiltölulega skamman feril. FIFA útnefndi hann fótboltamann ársins árið 2009, sama ár vann hann gullna boltann fyrir besta fótboltamann Evrópu. Á meðan á heimsmeistarakeppninni í fótbolta stóð í Suður-Afríku tókst liði Argentínu að komast í átta liða úrslit.
En Messi spilaði annað hlutverk í heimsókn sinni til Haítí þar sem hann var ákveðinn í að nota frægð sína í þágu bágstaddra barna um allan heim.
Það eru fáir staðir í heiminum í dag þar sem börn eru eins bágstödd og á Haítí. Þrátt fyrir árangur í hjálparstarfi eru yfir 1,2 milljónir haítískra barna berskjölduð gagnvart misnotkun og ofbeldi; 800.000 búa í tjöldum án aðgangs að viðunandi hreinlætisaðstöðu og með takmarkaðan aðgang að hreinu vatni, menntun og heilsugæslu.
UNICEF og aðrar hjálparstofnanir vinna stöðugt með stjórnvöldum á Haítí til að tryggja stuðning við þessi börn svo þau megi vaxa og dafna í umhverfi sem veitir þeim þá þjónustu sem þau þurfa.