93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
Þú ert hér:
Undanfarin ár hefur UNICEF á Íslandi selt vandaða gjafavöru til styrktar hjálparstarfi í þágu bágstaddra barna. Bókabúð Máls og menningar hefur nú tekið til sölu fjölmargar vörur úr leikfangalínu UNICEF og mun þegar nær dregur jólum einnig taka til sölu jólakort og fleiri gjafavörur.
Gjafavara UNICEF er þekkt fyrir að vera vönduð og á góðu verði. Viðskiptavinir geta einnig verið vissir um að ekkert í framleiðsluferli vörunnar orki tvímælist; að börn hafi ekki verið notuð við framleiðslu hennar, að engin náttúruspjöll séu unnin af framleiðslufyrirtækinu og að fyrirtækið sé ekki tengt misferli eða spillingu. Með því að kaupa vöru frá UNICEF er svo vitaskuld verið að styðja við gott málefni og færa börnum um allan heim gleði og von.
UNICEF á Íslandi fagnar samstarfinu við Bókabúð Máls og menningar sem veitir hinum fjölmörgu gestum og gangandi í miðbænum kost á því að nálgast gjafavöru UNICEF árið um kring.