English version

Dregur úr dauðsföllum vegna malaríu

Mikill árangur hefur náðst á síðustu árum í báráttunni gegn malaríu, ekki síst í sunnanverðri Afríku. Í stað þess að  sjúkdómurinn valdi dauða afrísks barns á þrjátíu sekúndna fresti, eins og verið hefur um árabil, er nú nær að tala um 40-45 sekúndur.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem UNICEF og Roll Back Malaria kynntu í tilefni alþjóðlega malaríudagsins 25. apríl. Mörgu af því sem fram kemur í skýrslunni ber að fagna. Framlög til malaríuvarna hafa til að mynda tífaldast á fáeinum árum. Á sama tíma hefur útbreiðsla malaríuneta fimmfaldast og lyfjaskammtar af ACT hafa þrítugfaldast. Árangurinn er eftir því. Talið er að 860 þúsund hafi látist árið 2008 úr sjúkdómnum í stað um einnar milljónar manna eins og mörg undanfarin ár.

Á sama tíma er hins vegar ljóst að mikið átak er framundan til að draga úr áhrifum þessa skæða sjúkdóms.

Ávarp Ann M. Veneman, framkvæmdastjóra UNICEF, má finna hér.

Skýrsluna má nálgast hér.