Mánuður frá jarðsjálftanum á Haítí
Mánuður er nú liðinn frá því að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí með skelfilegum afleiðinum fyrir fjölda fólks. Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir þrjár milljónir manna – þriðjungur íbúa á Haíti – hafi orðið fyrir miklum skaða. Þar af þurfa tvær milljónir manna á reglulegri matvælaaðstoð að halda. Ríflega 1,1 milljón manna er heimilislaus og hefst stór hluti fólksins nú við í bráðabirgðabúðum við slæm skilyrði. Yfirvöld á Haítí áætla að a.m.k. 300.000 manns hafi slasast í skjálftanum.
Afleiðingar hörmunganna bætast ofan á langvarandi fátækt og óstöðugleika á Haítí.
Margt hefur áunnist í hjálparstarfi þennan fyrsta mánuð frá jarðskjálftanum. Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (WFP) hóf matvæladreifingu á fyrsta sólarhringnum frá jarðskjálftanum og hefur náð til 2,5 milljóna manna í höfuðborginni, Port-Au-Prince, og nálægum svæðum. Að auki hefur WFP dreift matvælum á heimili fyrir munaðarlaus börn og spítala.
Nauðsynlegt að tryggja fólki skjól áður en regntímabilið byrjar
Áfram er unnið að því að tryggja sem flestum íbúum skjól, koma upp hreinlætisaðstöðu, tryggja frárennsli skólps og samræma dreifingu nauðsynlegra hjálpargagna og þjónustu. 1,2 milljónir Haítí-búa þurfa nauðsynlega að fá skjól áður en regntímabilið byrjar.
Nú þegar hafa yfir 270.000 manns fengið hjálpargögn á borð við segldúka, lakaléreft úr plasti og, í einhverjum tilfellum, tjöld. Hjálparstarf Rauða krossins á Haítí hefur verið það umfangsmesta í einu landi í sögu samtakanna. The International Organization for Migration vinna að því ásamt samstarfsaðilum og stjórnvöldum á Haíti að tryggja meira landsvæði fyrir bráðabirgðaskýli sem eru í öruggu skjóli fyrir flóðum og aurskriðum.
UNICEF gegnir lykilhlutverki
UNICEF og samstarfsaðilar hafa tryggt rúmlega 900.000 manns reglulegum aðgangi að vatni. Með Alþjóðlaheilbrigðismálastofnuninni og fleiri samstarfsaðilum stendur UNICEF nú fyrir umfangsmikilli bólusetningarherferð sem áætlað er að nái til 500.000 barna sjö ára og yngri.
Nánar má fræðast um starf UNICEF á Haítí hér.
„Það er áfram þörf á hinum skjótu viðbrögðum og örlætinu sem umheimurinn sýndi á fyrstu dögum og vikum eftir jarðskjálftann,“ sagði John Holmes, yfirmaður hjá Sameinuðu þjóðunum. „Það eru enn hundrað þúsund manns á Haítí sem eru svangir og þurfa nauðsynlega á skjóli og frekari hjálp að halda.“