Vissir þú að...

þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.

Þú ert hér:  

Þakkir til hlaupara sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF

Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er nú lokið en um 6000 hlauparar tóku þátt í öllum vegalengdum. UNICEF á Íslandi vill þakka öllum þeim hlaupurum sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF sem og þeim sem á þá hétu. Þegar þetta er skrifað hefur samtals 219.600 krónum verið heitið á UNICEF-hlaupara, en þess má geta að enn er hægt að heita á hlaupara, eða fram að miðnætti mánudaginn 23. ágúst.

Sigurvegari í maraþoni karla, Björn Margeirsson, er meðal þeirra sem kusu að safna áheitum fyrir UNICEF auk þess sem hann hét því að ef hann sigraði hlaupið og næði að safna áheitum upp á 100.000 krónur myndi hann persónulega bæta við 25.000 krónum. Björn hljóp á tímanum 2:33:57 en nánar má lesa um úrslit hlaupsins á heimasíðu Reykjavíkurmaraþons.