Lionel Messi nýr velgjörðasendiherra UNICEF
Í dag verður einn vinsælasti knattsyrnumaður heims, hinn argentínski Lionel Messi, útnefndur sem velgjörðasendiherra UNICEF. Messi bætist þar með í hóp heimskunnra einstaklinga sem kjósa að nota frægð sína í þágu bágstaddra barna um allan heim og vekja athygli á starfi UNICEF.
Messi, sem var kjörinn besti knattsyrnumaður heims á síðsta ári, leikur fyrir FC Barcelona sem hefur verið öflugur samstarfsaðili UNICEF um árabil.
Í hlutverki sínu sem velgjörðasendiherra mun Messi m.a. vekja athygli á þeim vandamálum sem sérstaklega berskjalda börn standa frammi fyrir og taka þát í viðburðum sem hafa það að markmiði að styðja við réttindi barna.
Í góðum hópi
Messi bætist í stjörnumprýddan hóp frægra einstaklinga sem vinna með UNICEF. Meðal annarra velgjörðasendiherra má nefna Orlando Bloom, Shakira, Ricky Martin, Ewan McGregor, Harry Belafonte, Roger Moore, Mia Farrow og annar kunnur knattspyrnumaður, David Beckham.
Samstarf FC Barcelona og UNICEF hefur vakið mikla athygli því keppnistreyjur Barcelona skarta einkennismerki UNICEF auk þess sem sérstakur sjóðu á vegum knattspyrnufélagsins styður ötullega við verkefni UNICEF í Afríku.