Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Nemendur í M.A. styrkja UNICEF

Nemendur í félagsfræðiáfanganum FÉL313, félagsfræði þróunarlanda, í Menntaskólanum á Akureyri hafa á þessari önn staðið fyrir söfnun til styrktar UNICEF. Tveir viðburðir voru haldnir í skólanum, bíókvöld og tölvuleikjamót, og rann ágóðinn óskiptur til UNICEF, samtals 133.086 kr.

Nemendur í MA styrkja Unicef
Nemendur í félagsfræðiáfanganum FÉL313, félagsfræði þróunarlanda, hafa á þessari önn staðið fyrir söfnun til styrktar UNICEF undir styrkri stjórn Önnu Sigríðar Davíðsdóttur kennslukonu. Tveir viðburðir voru haldnir í skólanum og rann ágóðinn óskiptur til UNICEF, samtals 133.086 kr. Fyrri viðburðurinn var bíókvöld þar sem hin sígilda gamanmynd Liar Liar með Jim Carrey í aðalhlutverki var sýnd og innifalið í aðgangseyrinum voru pizzur og sælgæti. Af þeirri samkomu söfnuðust um 80 þúsund krónur. Seinni viðburðurinn var hins vegar mót í tölvuleiknum FIFA 2010, þar sem nokkrir vaskir nemendur öttu kappi í fótboltaleik. Ýmsir veglegir vinningar voru í boði sem nokkur fyrirtæki gáfu, þar á meðal ljósakort frá Stjörnusól og FIFA 2010 leikir frá Pennanum. Alls söfnuðust 36.500 kr. Þessi söfnun gekk betur en bjartsýnustu menn höfðu þorað að vona og eru nemendurnir afar ánægðir með árangurinn. Söfnunarféð hefur nú verið fært inn á reikning UNICEF og treysta nemendurnir því að peningarnir verði til þess að lífsgæði einhverra barna aukist - þó ekki nema aðeins!

Bíókvöld til styrktar Unicef
Kvöldið 24. mars héldu 28 nemendur 2.FGHI nemendur í Þróunarlandafélagsfræði 313 í Menntaskólanum á Akureyri, bíókvöld til styrktar UNICEF samtökunum. Sýnd var myndin góðkunna Liar Liar þar sem Jim Carrey fer með aðalhlutverkið. Kostaði einungis 700 krónur inn og fengu gestir nammipoka frá Nóa Sirius og happdrættismiða við inngöngu. Svo í hléi fengu allir viðstaddir pítsu frá Greifanum og gos frá Ölgerðinni. Þrír heppnir gestir fengu svo verðlaun í happdrættinu þar sem voru heldur betur veglegir vinningar frá m.a. BT, Brynju, Keiluhöllinni, Bryggjunni og Borgarbíó og viljum við þakka þessum fyrirtækjum, ásamt Greifanum og Ölgerðinni, fyrir stuðninginn. Nemendur í bekknum sáu um að skipuleggja kvöldið frá a til ö, undir verndarvæng Önnu Sigríðar Davíðsdóttur. Voru vægast sagt góðar viðtökur og mættu um 100 manns sem leiddi til þess að söfnuðust um 80 þúsund krónur. Ákveðið var strax í byrjun verkefnisins hvaða góðgerðarsamtök skildi styrkja og varð UNICEF strax fyrir valinu vegna þess að nemendur voru mjög ánægðir með fyrri frammistöðu samtakanna í ýmsum verkefnum.

Fréttirnar voru skrifaðar af nemendum í félagsfræðiáfanga FÉL313 í Menntaskólanum á Akureyri.

UNICEF kann nemendunum bestu þakkir fyrir stuðninginn.