hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
UNICEF mun veita einni milljón barna og fjölskyldna þeirra aðstoð eftir jarðskjálftana í Chile sem hófust 27. febrúar síðastliðinn. Það er enn óljóst hversu eyðileggingin er mikil eftir harða jarðskjálftann í gær. Talið er að yfir 500 manns hafi látist eftir fyrri skjálftann. Sex svæði, þar sem 80% íbúa Chile búa, urðu fyrir tjóni.
Þau svæði sem urðu hvað verst úti eru þau fátækustu í landinu. Vegir eru eyðilagðir og heilu þorpin voru þurrkuð út í flóðbylgjunni sem fylgdi skjálftanum. Stofnanir, skólar, heilsugæslustöðvar og a.m.k. hálf milljón heimila voru eyðilögð eða skemmdust mikið.
,,Eins og í hverju öðru stórslysi eru það börnin sem þjást mest. Þau eru sérstaklega varnarlaus gagnvart kulda, hungri og sjúkdómsfaröldrum. Hið daglega líf þeirra hefur verið truflað og mörg hver eiga erfitt með að ráða við slíkt áfall. Við verðum að hjálpa þeim núna," sagði Gary Stahl, yfirmaður UNICEF í Chile.
UNICEF hefur beðið um 3,5 milljónir bandaríkjadala til að mæta brýnustu þörfum barna og kvenna á svæðinu. UNICEF mun aðstoða á marga vegu, m.a. með því að veita sálræna hjálp, og dreifa skólagögnum og vatni, auk hreinlætisvara. UNICEF vinnur náið með ríkisstjórn Chile sem sór embættiseið sinn í gær.