Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Norræn könnun um réttindi barna til þátttöku

UNICEF á Íslandi mun halda hádegisfund á morgun, miðvikudaginn 21. apríl  kl. 12-13, á skrifstofu samtakanna að Laugavegi 42, þar sem kynntar verða helstu niðurstöður könnunar sem gerð var meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund barna.

Könnunin er viðamikil og var gerð frá ágúst 2009 til febrúar 2010. Niðurstöðurnar hennar verða gefnar út í skýrslu sem kynnt verður á sama tíma á öllum Norðurlöndunum á morgun. Einnig hefur verið gerð sér skýrsla um niðurstöður könnunarinnar á Íslandi.

Markmið könnunarinnar var að ákvarða að hvaða marki hlustað sé á börn og í hvaða málefnum þau vilja helst að hlustað sé á sig. Þar með er varðaður vegur til aukinnar og betri þátttöku barna í daglegu lífi inni á heimilum, í skóla, tómstundastarfi ungmenna og í samfélaginu öllu.

Kannað var hversu meðvitaðir nemendur á efsta stigi grunnskóla, þ.e. 12-16 ára, á Norðurlöndunum eru um réttindi barna og um mannréttindi almennt.  Viðhorf til fjölmiðla, upplýsinga og þátttökuleiða voru skoðuð og hvaða aðferðir þessi aldurshópur nýtir til að hafa áhrif. Markmið könnunarinnar var einnig að safna upplýsingum um viðhorf þátttakenda til umhverfismála og lífsgæða svo eitthvað sé nefnt.