Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

Ein milljón hefur safnast fyrir hjálparstarf í Pakistan

UNICEF á Íslandi hóf í gær söfnun fyrir hjálparstarf UNICEF á flóðasvæðunum í Pakistan. Ljóst er að fjölmargir Íslendingar ætla að svara kallinu en á fyrsta sólarhringnum hefur safnast yfir ein milljón króna. UNICEF metur mikils hvert framlag og hvetur sem flesta að taka þátt í söfnuninni.

Hið gríðarlega umfang neyðarinnar í Pakistan kemur sífellt betur í ljós. Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafa a.m.k. 15,5 milljónir manna orðið fyrir beinum áhrifum af flóðunum sem koma í kjölfar mikilla monsún-rigninga, þar af er um helmingurinn börn. Af þeim eru um 3,5 milljónir barna í mikilli hættu á að veikjast alvarlega, m.a. af öndunarfærasýkingum, niðurgangi og kóleru.

Aldrei séð annað eins
Haft er eftir Daniel Toole, yfirmanni UNICEF í Asíu, að á fimmtán ára starfsferli hans á sviði neyðaraðstoðar hafi hann aldrei orðið vitni að öðru eins ástandi og blasir nú við í Pakistan.

Til að setja hamfarirnar í evrópskt samhengi er flatarmál flóðasvæðisins í Pakistan sambærilegt Sviss, Austurríki og Belgíu. Fjárþörf UNICEF til að sinna hjálparstarfinu er gríðarlega mikil og er gott til þess að vita að íslenskur almenningur ætli að leggja sitt af mörkum.