á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Samkvæmt nýjustu áætlunum stjórnvalda í Pakistan hafa um 20 milljónir íbúa orðið fyrir áföllum í kjölfar flóðanna. Af þeim eru yfir átta milljónir barna undir 18 ára aldri. Fjórar milljónir þeirra eru í mikilli hættu á að smitast af vatnsbornum sjúkdómum á borð við blóðkreppusótt, niðurgang og kóleru, auk mislinga og mænusóttar. Hætta er á að ástandið versni enn frekar ef alþjóðasamfélagið eykur ekki stuðning við neyðaraðgerðir.
Haft er eftir Daniel Toole, yfirmanni UNICEF í Suður-Asíu, að umfang neyðarinnar í Pakistan sé það mesta í kjölfar náttúruhamfara í um áratug. Helst þurfi að líta til flóðbylgjanna við Indlandshaf árið 2004 til að finna ástand sem nálgist þá neyð sem nú blasir við hjálparstarfsfólki í Pakistan. Til að átta sig betur á umfanginu má benda á að stærð svæðisins sem flætt hefur yfir er sambærilegt Austurríki, Belgíu og Sviss samanlagt.
Yfir 770.000 börn verið bólusett
Forgangsverkefni UNICEF á neyðarsvæðinu snúa að því að útvega ómengað vatn, koma í veg fyrir vannæringu barna, bólusetja börn gegn lífshættulegum sjúkdómum sem ógna lífi og heilsu þeirra og veita aðra aðkallandi heilbrigðisþjónustu. Einnig vinna samtökin að því að hafa upp á börnum sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og veita börnum skjól.
Á hverjum degi útvega samtökin um 1,9 milljónum manna vatn – sem er engu að síður brot af öllum þeim sem þurfa á slíkri hjálp að halda. Bólusetningarátak UNICEF hefur náð til yfir 770.000 barna og kvenna og 72 svokölluðum barnvænum svæðum hefur verið komið upp. Áfram mætti telja en ljóst er að þörfin er miklu, miklu meiri en það fjármagn sem UNICEF hefur til umráða getur staðið undir.
Íslendingar bregðast við fréttum af ástandinu
Síðasta miðvikudag kallaði UNICEF á Íslandi eftir stuðningi almennings til að mæta hinni brýnu þörf barnungra fórnarlamba flóðanna í Pakistan. Á þeirri viku sem liðin er síðan þá hafa safnast yfir tvær milljónir króna. UNICEF er afar þakklátt þeim sem hafa brugðist við neyð pakistanskra barna með framlögum um leið og skorað er á sem flesta að leggja neyðarstarfinu lið.
Hægt er að styðja við neyðaraðgerðir UNICEF með því að hringja í eftirfarandi söfnunarnúmer:
908-1000 (1000 króna framlag),
908-3000 (3000 krónur) og
908-5000 (5000 krónur)