yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?
Þú ert hér:
Hægt er að leggja neyðaraðgerðunum í Pakistan lið með því að leggja inn á söfnunarreikning UNICEF,
515-26-102040, kt. 481203-2950.Sjá myndband UNICEF frá birgðaflutningum á flóðasvæðið hér.
Hluti þessara birgða verður sendur til nauðstaddra kvenna og barna á svæði í Sindh-héraði sem urðu verst úti í flóðunum meðan aðrar birgðir verða sendar kvenna og barna á öðrum svæðum í Pakistan.„Aðalvörugeymsla UNICEF sem staðsett er í Kaupmannahöfn hefur staðið ötullega í því að senda hjálpargögn til þess að styðja við neyðaraðgerðirnar á flóðasvæðunum,“ sagði yfirmaður svæðaskrifstofu UNICEF í Sindh-héraði, Andro Shilakadze.
Mikil þörf á stuðningi
UNICEF, í samstarfi við stjórnvöld í Afganistan, sendi á dögunum 40 tonn af hjálpargögnum landleiðina frá Afganistan til svæða sem urðu illa úti í flóðunum í Pakistan. Þær birgðir innihéldu næringarríkar kexkökur og sölt sem sporna gegn uppþornun af völdum niðurgangssjúkdóma.
Talið er að 14 milljónir manna hafi orðið illa úti í flóðunum í Pakistan, þar af sex milljónir barna. Af þeim telur UNICEF að um 2,7 milljónir barna þurfi á lífsnauðsynlegri aðstoð að halda tafarlaust. Hundruðir þúsunda manna hafa hlotið neyðaraðstoð en milljónir fleiri þurfa lífsnauðsynlega aðstoð í formi húsaskjóls, matar, vatns og heilsugæslu. Búist er við að fjöldi þeirra sem þurfa aðstoð geti vaxið töluvert á næstu dögum.
Í samvinnu við stjórnvöld í Pakistan leiðir UNICEF neyðarstarf á sviði vatns og hreinlætis, og næringar. UNICEF vinnur einnig náið með samstarfsaðilum að verndun barna og menntun.
Verndun og stuðningur
Ef neyðaraðstoð í formi heilnæms vatns, heilsugæslu og hreinlætisgagna berst ekki til fórnarlamba flóðanna í Pakistan eins fljótt og auðið er, er mikil hætta á að önnur bylgja dauðsfalla ríði yfir flóðasvæðin í kjölfar sjúkdóma.
Um 60 prósent þeirra sem urðu illa úti í flóðunum eru konur og börn. Börn eru sérstaklega varnarlaus í hamförum sem þessum og því er mikil þörf til þess að veita þeim þá vernd og aðstoð sem þau þurfa og eiga rétt á. UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að koma upp barnvænum svæðum á flóðasvæðunum, reisa bráðabirgðaskóla í neyðarbúðum og vernda þau börn sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar.