UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.
Þú ert hér:
Ástandið er enn gríðarlega slæmt á flóðasvæðunum í Pakistan og neyðaraðgerða er enn þörf. Um 18 milljónir manna hafa orðið illa úti í flóðunum og um fimmtungur landsins er enn undir vatni. Dánartalan hefur hækkað upp í 1.600 manns.
Landsmenn hafa tekið afar vel í söfnun UNICEF á Íslandi og þegar hafa safnast 2,5 milljónir króna. Söfnunin heldur áfram enda er ærið verk fyrir höndum á flóðasvæðunum í Pakistan. Söfnunarsímanúmer UNICEF á Íslandi eru sem áður 908-1000, 908-3000 og 908-5000 fyrir 1.000 kr, 3.000 kr. og 5.000 framlag.
Eftir margar vikur af rigningum hefur nú loks stytt upp. Þökk sé uppbyggingarstarfi á sumum svæðum í Khyber-Pakhtunkhwa héraðinu og syðri hluta Punjab héraðsins hefur fólk fengið að snúa aftur til heimkynna sinna eftir að hafa hafst við í neyðarbúðum í margar vikur.
Heilnæmt vatn er lífsnauðsyn
„Neyðin er enn gríðarleg,” segir yfirmaður vatns- og hreinlætisverkefna UNICEF í Pakistan, Omar el-Hattab. „Mikil hætta er á að skólp berist í drykkjarvatn á flóðasvæðunum sem myndi hrinda af stað öðru neyðarástandi.”
Flóðvötnin hafa minnkað á síðustu dögum sem gerir fólki kleift að snúa til síns heima. Aðgengi að heilnæmu drykkjarvatni á þessum svæðum er þó gríðarlega takmarkað og gæti sett heilsu íbúanna í hættu.
Þörfin eykst
Enn hefst fjöldi fólks við á vegarköntum, í skólum og í moskum á flóðasvæðunum. UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að bæta hreinlætisaðstöðu í byggingum og svæðum þar sem fólk býr sem hrakist hefur frá heimilum sínum.
UNICEF hefur þungar áhyggjur af útbreiðslu sjúkdóma, sérstaklega malaríu og niðurgangs, ef ekki tekst að tryggja fólki í neyð aðgang að heilnæmu drykkjarvatni. Síðustu helgi jókst fjöldi þeirra sem sóttu heilsugæsluþjónustu á flóðasvæðunum um eina milljón manna. Börn eru um helmingur þeirra sem urðu illa úti í flóðunum og eru þau sérstaklega berskjalda gegn sjúkdómum.
UNICEF útvegar um tveimur milljónum manna vatn á hverjum degi. Vegna fjárskorts og hins gríðarlega umfangs neyðarinnar getur UNICEF ekki starfrækt þau hreinlætisverkefni sem þörf er á og veldur það starfsfólki Barnahjálparinnar miklum áhyggjum.
UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að finna nýjar leiðir til þess að útvega fólki vatn og tryggja hreinlæti. Hér er um að ræða fjöldaframleiðslu á salernum og vatnshreinsibúnaði. Með þessum aðferðum er vonast til þess að hægt sé að ná til fleiri barna og fjölskyldna þeirra á flóðasvæðunum og hefta útbreiðslu sjúkdóma.