á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF verða til sölu í flestum stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu fyrir þessa páska. Um er að ræða lítil sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Páskaeggin verða auk þess á boðstólum á fjölmörgum kaffihúsum og í smærri verslunum. Söluverð páskaeggjanna er 500 krónur.
Góðgerðarpáskaeggin eru sérpökkuð í fallegar öskjur, myndskreyttar af hönnuðinum Signýju Kolbeinsdóttur. Signý er annar eigenda hönnunarfyrirtækisins Tulipop sem á veg og vanda af sölu eggjanna. Helmingur ágóða af sölu hvers páskaeggs rennur til styrktar UNICEF en samtökin bera engan kostnað af framleiðslu þeirra og dreifingu.
Fyrir ágóðann af hverju páskaeggi getur UNICEF til dæmis bólusett fimm börn gegn mænusótt eða útvegað fjölda barna drykkjarhæft vatn á neyðartímum.
Fjallað var um UNICEF-páskaeggin í hádegisfréttum RÚV í dag. Hlusta má á umfjöllunina hér.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um UNICEF-páskaeggin hjá Signýju Kolbeinsdóttur hönnuði (signy@tulipop.com, s. 843-9131) eða hjá skrifstofu UNICEF (552-6300).