á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF hafa verið til sölu undanfarnar tvær vikur í mörgum af stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sem og minni útsölustöðum. Um er að ræða sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Nú þegar rúmar tvær vikur eru til páska hafa yfir tvö þúsund egg selst.
Söluverð páskaeggjanna er 500 krónur.
Góðgerðarpáskaeggin eru sérpökkuð í fallegar öskjur, myndskreyttar af hönnuðinum Signýju Kolbeinsdóttur.
Fyrir ágóðann af hverju páskaeggi getur UNICEF til dæmis bólusett fimm börn gegn mænusótt eða útvegað fjölda barna drykkjarhæft vatn á neyðartímum.
Eggin eru fáanleg á eftirfarandi sölustöðum:
• Hagkaup Skeifunni, Kringlunni, Smáralind og Garðabæ.
• Krónan Árbæ, Bíldshöfða, Granda, Hvaleyrarbraut, Jafnaseli, Lindarvegi, Mosfellsbæ, Reykjavíkurvegi
• Nóatún Austurveri, Grafaholti, Hamraborg, Hringbraut, Nóatúni
• Melabúðin
• Te og kaffi Kringlunni, Smáralind, Laugavegi 27, Eymundsson Skólavörðustíg, Hugmyndahúsi Háskólanna Grandagarði, Pennanum í Hafnarstræti á Akureyri.
• Kaffitár Höfðatorgi, Smáralind, Þjóðminjasafni Íslands, Kaffibrennslunni að Stapabraut, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Bankastræti 8, Kringlunni.
• Garðheimar
• Epal í Skeifunni
• Kaffihúsið Garðurinn, Klapparstíg
• Verslunin í Norræna húsinu
Innan skamms munu viðskiptavinir valdra Bónuss-verslana svo einnig geta nælt sér í UNICEF-páskaeggin sem eru góð í fleiri en einum skilningi.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um UNICEF-páskaeggin hjá Signýju Kolbeinsdóttur hönnuði (signy@tulipop.com, s. 843-9131) eða hjá skrifstofu UNICEF (552-6300).