Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Rausnarleg gjöf frá fermingarstúlku

Harpa Hrönn Hjaltalín Arnarsdóttir leit við á skrifstofu UNICEF á dögunum með góðan glaðning. Harpa Hrönn, sem fermdist í vor, tók þá ákvörðun að láta 40 þúsund krónur af fermingarpeningunum renna til starfsemi UNICEF í þágu þurfandi barna.

Það er ástæða til mikillar bjartsýni ef komandi kynslóð sýnir af sér jafn þroskaða samfélagslega hugsun og Harpa Hrönn. UNICEF á Íslandi kann henni bestu þakkir fyrir frábært framtak.

Á myndinni sést Harpa Hrönn taka við viðurkenningarskjali úr höndum Bergsteins Jónssonar, starfsmanns UNICEF á Íslandi.