Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Robbie Williams vekur athygli á neyð barna á Haítí

Simon Niblett/UNICEF 2010Nú þegar þrír mánuðir eru liðnir frá hamförunum á Haítí vekur breski söngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Robbie Williams, athygli á neyð barna í landinu. Hann hvetur fólk til að gera allt sem það getur til að veita börnum þar hjálparhönd:

„Ég er nýkominn frá Haítí nú þegar heimurinn minnist þess að þrír mánuðir eru liðnir frá jarðskjálftanum. Líkt og þú þá hafði ég heyrt um hversu slæmar hamfarirnar voru en að sjá eyðilegginguna og hörmungarnar, sem þær leiddu yfir börn og fjölskyldur, var verra en ég gat ímyndað mér. Ég sá einnig hvernig UNICEF og samstarfsaðilar vinna stöðugt til að koma lífsnauðsynlegum hjálpargögnum til fjölskyldna sem þurfa á þeim að halda og hvernig samtökin hjálpa börnum að komast aftur í skóla, en þau elska að fá að halda námi sínu áfram.“

„Það er þó stór áskorun framundan. Við höfum tækifæri til að breyta lífum barna á Haítí til langframa. Við getum leiðrétt það sem miður hefur farið í t.d. heilsugæslu og menntun og byrjað nýjan kafla fyrir börn á Haítí. Ég hvet þig, hvar sem þú ert í heiminum akkúrat núna, til að muna eftir börnunum á Haítí og gefa það sem þú getur til UNICEF til að hjálpa þeim að tryggja börnum bjartari framtíð.“

Tekist hefur að halda sjúkdómsfaröldrum í skefjum
Fyrir þremur mánuðum olli öflugur jarðskjálfti mikilli eyðileggingu á Haítí, einu fátækasta ríki í sínum heimshluta. UNICEF hefur gefið út skýrslu um stöðu þeirra 1,5 milljón barna sem urðu hjálparþurfi eftir hamfarirnar, en einnig nefnir skýrslan þau verkefni sem framundan eru til að hægt sé að bæta líf barna og kvenna á svæðinu.

Einn helsti árangur hjálparstarfsins til þessa er að tekist hefur að halda sjúkdómsfaröldrum og vannæringu í skefjum. Yfir milljón manns hafa aðgang að hreinu vatni, hundruð þúsunda kvenna og barna fá matargjafir, yfir 100 þúsund börn hafa verið bólusett í stórum bólusetningarherferðum og skólar hafa verið opnaðir í tímabundnum skýlum.

Öll börn á Haítí eiga rétt á menntun
Robbie Williams sá hvernig UNICEF veitir milljónum barna von eftir jarðskjálftana. Hann var viðstaddur þegar átakinu „náms-hreyfingunni“ var hleypt af stokkunum, en átakinu er ætlað að koma hverju einasta barni á Haítí í skóla. Í Jacmel hefur tekist að opna nær helming allra skóla en þeir hjálpa börnum að ná stöðugleika aftur í líf sitt.

Sýn UNICEF er að öll haítísk börn eigi rétt á menntun og þess vegna vinna samtökin nú að því að veita 720 þúsund nemendum skólatöskur með öllum nauðsynlegum skólagögnum, sem og að dreifa kennslugögnum í skólastofur. Að auki hafa 3000 skólatjöld verið reist. Kennarar hafa hlotið hraðþjálfun í nýrri námsskrá sem ætlað er að hjálpa börnum að byrja að læra aftur.

Börn í forgang
UNICEF kallar eftir því að börn verði sett í forgang í því uppbyggingarstarfi sem framundan er. Sér í lagi mun UNICEF leggja áherslu á að koma í veg fyrir vannæringu, byggja upp verndandi umhverfi fyrir börn og tryggja menntun fyrir alla. Þetta eru forgangsatriði sem skipta sköpum fyrir framtíðarþróun landsins.

Önnur mikilvæg atriði í hjálparstarfinu nú er að finna fjölskyldum, sem misst hafa heimili sitt, betra og öruggara skjól, auka grundvallarþjónustu samfélagsins og styrkja verndandi umhverfi fyrir konur og börn.

Þessi forgangsatriði eiga við nú, en einnig eiga þau að tryggja það að börn á Haítí geti notið réttinda sinna um alla framtíð.

UNICEF hefur óskað eftir 222 milljónum bandaríkjadala til að standa að hjálparstarfi á Haítí næstu 12 mánuði. Til þessa hefur tekist að safna 186 milljónum dala.