Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Þátttakendur í RVK-maraþoni geta hlaupið fyrir UNICEF

Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis. Allir hlauparar geta valið að tengja sig tilteknu góðgerðarfélagi, hvetja svo vini og vandamenn til að heita á sig og renna áheitin til félagsins.

Sem fyrr er UNICEF meðal þeirra góðgerðafélaga sem hlauparar geta tengt sig við þegar þeir skrá sig til keppni. Áheit á þá hlaupara sem velja að tengjast UNICEF renna til hjálparstarfs samtakanna í þágu bágstaddra barna um allan heim.

UNICEF hvetur alla hlaupara í hópi styrktaraðila sinna til að skrá UNICEF sem sitt góðgerðarfélag en nánari upplýsingar um hvernig skal bera sig að er að finna hér. Hægt er að skrá sig í hlaupið hér.

UNICEF á Íslandi er afar þakklátt þeim fjölda hlaupara sem hefur kosið að hlaupa fyrir UNICEF undanfarin ár sem og þeim sem stutt hafa við bakið á samtökunum með því að heita á UNICEF-hlaupara.

Leiðbeiningar um hvað gera skuli ef ætlunin er að heita á ákveðinn hlaupara eða góðgerðafélag má finna á heimasíðu hlaupsins hér.